GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ

HELSTU UPPLÝSINGAR
 
 9 dagar / 8 nætur    Allur akstur mv. dagskrár ferðarinnar
  4. - 12. 9. 2023    Flug og flugvallaskattar                    
 Lágm.10/hám. 15    Fararstjóri: 
 Hálft fæði*      Örvar Aðalsteinsson 
 
MJÖG FJÖLBREYTT GÖNGUFERÐ UM FALLEGAR SLÓÐIR VIÐ GARDAVATNIÐ Á ÍTALÍU

 

Fáir staðir taka bænum Riva del Garda og nágrenni hans fram hvað fegurð og fjölbreytni varðar, og möguleikar þessa stórbrotna landslags við norður enda Gardavatnsins til hvers konar útivistar eru nánast óþrjótandi.

Dvalið verður á Hótel Centrale, frábærlega vel staðsettu þriggja stjörnu hóteli við höfnina og aðaltorg bæjarins, og þaðan farið í styttri og lengri ferðir, ýmist gangandi eða akandi, til þess að kynnast vel þessu fallega svæði. Farið með strætó, „skutlurum“, kláfi eða ferju eftir því sem þarf til þess að fylla upp í dagskrá ferðarinnar.

Gönguleiðirnar eru allt frá því að vera frekar léttar upp í frekar erfiðar (2-4 af 5). Misjafnt er hversu snemma komið verður til baka úr ferðum dagsins og a.m.k. suma dagana verður góður tími til þess að slappa af – úti á torgi, niður við bryggju, eða á sólarströndinni fyrir kvöldverðinn!

Í aðalhlutverki verður auðvitað fjölbreytt og fallegt landslagið og farið um það á þröngum stígum og breiðum götum - vissulega svolítið bratt stundum - en Riva del Garda, Arco, Torbole, Nago, Limone og Malcesine eru líka hver um sig fallegir bæir, um margt ólíkir, og um þá alla verður farið til að sjá kastala og kirkjur, garða og gróður, stræti og torg, báta og bryggjur.

Vænta má hitastigs 15-25°C 

_____________________________________________________________________________________________________________________________________________

Hálft fæði* morgunverðir alla dagana - fjórir kvöldverðir á hótel Centrale - þrír kvöldverðir á veitingastöðum annars staðar á svæðinu - samtal sjö kvöldverðir

Flogið með Icelandair - hægt að nota vildarpunkta Icelandair til lækkunar fargjaldsins, fáið nánari upplýsingar um það með því að senda fyrirspurn á ferdir@fjallakofinn.is 

Smellið á rauða  Nánari upplýsingar hnappinn hérna ofar til hægri fyrir dagská, verð o.fl.

Verð frá 369.900 kr

Staðfestingargjald 100.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð Nánari upplýsingar
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ
GENGIÐ VIÐ GARDAVATNIÐ

 


Ábendingar:
Fjallakofinn Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferð átta vikum fyrir brottför ef þátttaka er ekki næg.
Fjallakofinn Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir og fararstjórar hennar áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til. Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutrygginga fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd.

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.