DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ

HELSTU UPPLÝSINGAR

  10 dagar / 9 nætur   Allur akstur og flutningar
  26. 5 - 4. 6. 2026   Flug og flugvallaskattar
  Lágm. 10 / hám. 18

  Fararstjórn: Brandur Jón H. Guðjónsson, 

Robert Ciglar og/eða Zvone Hochevar

  Hálft fæði  

 

LÉTT OG SLÉTT - OG SVO SKEMMTILEGA FJÖLBREYTT

- UPPFÆRSLA FRÁ ELDRI FERÐUM: ENN BETRI HJÓL, FYLGDARBÍLL ALLAN TÍMANN

Ein fjölfarnasta og vinsælasta hjólreiðaleið Evrópu liggur meðfram Dóná, frá Passau í Þýskalandi austur til Vínarborgar í Austurríki, og árlega bjóða Fjallakofinn-Ævintýraferðir / Íslandsvinir upp á ferð um þessar fallegu og áhugaverðu slóðir.

Þessar vinsældir eru engin tilviljun, leiðin fylgir þessu mikla fljóti um bugður og beygjur þar sem ýmist er flatlendi með þorpum og bæjum allt í kring eða þröngir dalir þar sem gamla kastala ber við himin á skógi vöxnum hæðum og ásum ofan árinnar. Áætluð heildarhjólun ferðarinnar er uþb. 360 km.

Landslagið er fjölbreytt og fallegt og ýmist er hjólað sunnan eða norðan megin árinnar. Skipastigar og vatnsaflsstöðvar eru á nokkrum stöðum í ánni og þar er farið yfir hana eða á brúm eða með litlum þjónustu bátum.

Vænta má hitastigs frá 12 – 25°C og notalegrar vorstemningar í veðráttu og náttúrufari.

Skip og bátar af ýmsum stærðum og gerðum sigla um fljótið og á frjósömu landinu meðfram ánni er rekinn blómlegur landbúnaður.

Byggð hefur verið á þessu svæði í árþúsundir og í ferðinni verður stiklað á mjög stóru um viss tímabil í sögu þess. Hjólaleiðin er nánast alveg flöt eða örlítið niður á við og dagleiðirnar eru u.þ.b. 50 – 70 km.

Í lok ferðar verður farið í skoðunarferðir með leiðsögn til þess að sjá ýmsa merka staði og byggingar í bæði Vínarborg og Salzburg.

Gist verður á þægilegum 3*** og 4****hótelum og gistihúsum. Farangur (ein taska á mann) verður fluttur með bíl á milli gististaða á hjólaleiðinni.

Þetta er ferð sem hentar nánast öllum sem á annað borð geta hjólað. Þó ber að hafa í huga að hjólað er sex daga í röð þannig að þátttakendur þurfa að vera vanir að sitja hjól í nokkra klukkutíma á dag.

Allir þátttakendur verða á góðu rafhjóli!

Mjög mikil þjónusta – Íslenskur fararstjóri og erlendur aðstoðarmaður sem sér um alla þjónustu varðandi hjólin og verður á bíl sem flytur farangur á milli gististaðanna, auk þess sem hann verður nýttur sem hressingarstöð öðru hvoru yfir daginn.

 

Algjör hjálmaskylda er í öllum okkar hjólaferðum 😊

 

Ferðaráætlun:

Dagur 1 – þriðjudagur, 26. maí

Munchen - Passau

Flogið með Icelandair kl. 07:20 til Munchen, áætluð lending þar kl. 13:05 og við tekur lestarferð til Passau, sem tilheyrir Bæjaralandi í Þýskalandi.

 

Dagar 2 til 7 – miðvikudagur, 27. maí, til mánudags, 1. júní

Passau  – Vín

Byrjað er á að skoða miðbæinn í Passau, borg hinna þriggja fljóta, en síðan hefst hin eiginlega hjólaferð í framhaldi af því – uþb. miðjavega á fyrstu dagleið er farið yfir landamærin inn í Austurríki og  verið þar það sem eftir lifir af hjólaleiðinni.

Næstu daga verður farið um fjölbreytt og fallegt landslagið meðfram Dóná þar sem ótalmargt smærra og stærra vekur athygli;  um grösugar sveitir og glitrandi torg og fylgst með mannlífi, dýralífi og fuglum himinsins eða hverju því öðru sem fyrir augu ber. Um Schlögen (þar sem áin tekur 180° beygju), Linz (eina af menningarborgum Evrópu 2009), Wachau dalinn (á heimsminjaskrá UNESCO) o.fl. o.fl. – Og svo eru allskonar skip og bátar á ferð með fólk eða varning upp og niður eftir ánni.

Kíkt á skipastiga, friðarsúlur, frægar svalir, inn í fjós og líka farið á mismunandi söfn (valkvætt).

- Upptalning segir ekki nema hálfa sögu, því að nú sem ætíð er sjón sögu ríkari!

Dagleiðirnar eru uþb. 50 – 70 km og farið frekar rólega um til að upplifa það sem fyrir augu ber og hver dagur nýttur í að njóta frekar en þjóta þar sem dagleiðin öll er markmið hvers dags, en ekki bara næsti gististaður.

Seinnipart dags þann 1. júní verður komið inn á hótel í Vínarborg

 

Dagur 8 – þriðjudagur, 2. júní

Vínarborg og Salzburg

Eftir morgunverðinn verður farið akandi og gangandi í skoðunarferð um miðbæinn í Vínarborg, í leiðsögn heimamanns, til að sjá nokkur af helstu kennileitum þessarar fallegu borgar, en þar eru bæði borgarhlutar og byggingar á heimsminjaskrá UNESCO. Seinnipartinn verður svo farið með lest til Salzburg.

 

Dagur 9 – miðvikudagur, 3. júní

Salzburg

Salzburg er lítil og snotur borg, og eftir morgunverðinn verður farið í gönguferð með staðarleiðsögumanni til þess að kynnast betur borg Mozarts og Söngvaseiðs. Eftir hádegið verður svo frjáls tími til þess t.d. að tylla sér á kaffihús, smakka ósvikna Mozart kúlu, fara upp að kastalanum, kíkja í verslanir eða fara á söfn. Lokakvöldmáltíð ferðarinnar verður síðan tekin á góðum veitingastað.

 

Dagur 10 – fimmtudagur, 4. júní

Heim á leið...

Snemma dags verður farið með lest yfir til Munchen flugvallar, flugið heim er kl. 14:05 


Gist í eða nálægt eftirtöldum borgum og bæjum:

26. maí   -  Passau

27. maí   - Schlögen

28. maí   - Linz

29. maí   - Grein

30. maí   - Emmersdorf

31. maí   - Traismauer

  1. júní   - Vínarborg

2. og 3. júní  - Salzburg  


 

VERÐ

Á mann í tvíbýli  459.900

Á mann í einbýli 519.900

 

Greiðslur og gjalddagar:

Greiða þarf staðfestingargjaldið strax við skráningu 

Hægt er að velja um tvær leiðir við greiðslu þess:

1)  Í gegnum heimabanka: Kt. 470898-2919 (Íslandsvinir hf.) banki 0328-26-000288 - ath að áríðandi er að láta kerfið senda staðfestingu á greiðslunni á netfangið ferdir@fjallakofinn.is með skýringunni < Dóná 2026 >

2)  Greiðslutengill fyrir greiðslu með kreditkorti - smellið á hlekkinn hér fyrir neðan eða takið afrit og límið á vafra (ef þessi leið er valin fáum við sjálfkrafa sendan póst með staðfestingu á greiðslunni):

https://securepay.borgun.is/SecurePay/Ticket.aspx?ticket=IG91vdBEF

 

Þessi greiðslutengill er upp á kr. 200.000 ef verið er að greiða staðfestingargjald fyrir tvo með sama korti:

https://securepay.borgun.is/SecurePay/Ticket.aspx?ticket=goh3W46ul

 

Skráning hér á síðunni eða með því að senda tölvupóst á ferdir@fjallakofinn.is


Farþegar í ferðum Fjallakofans-Ævintýraferða / Íslandsvina hf. fá sérkjör í Fjallakofanum

 

* Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa 

Greiða þarf staðfestingargjald strax við skráningu - sjá texta neðst á þessari síðu

Verð frá 459.900 kr

Staðfestingargjald 100.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ
DÓNÁRDRAUMUR 2026 - RAFHJÓLAFERÐ

Ábendingar:

Lágmarks þátttaka er 10 manns. Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferðina ef þátttaka er ekki næg, og mun þá endurgreiða að fullu.

Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir hf., fararstjórar hennar og bílstjórar, áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.

Hvert og eitt tekur þátt í ferðinni á eigin ábyrgð!

Sjúkdóma-, slysa- og forfallatryggingar eru ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í flestum tilfellum eru slíkar tryggingar innifaldar í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum og er viðskiptavinum bent á nauðsyn þess að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála.

Krafa er gerð um að þátttakendur séu í líkamlegu og andlegu standi til þess að taka þátt í dagskrá ferðarinnar og ferðaskrifstofan áskilur sér og fararstjórum allan rétt til þess að vísa þátttakendum sem ekki uppfylla þessi skilyrði úr ferðinni og er viðkomandi þar með búinn að fyrirgera rétti sínum til notkunar á þjónustu þeirri sem ferðin er byggð á og án þess að til greiðslu kostnaðar eða endurgreiðslu komi af hálfu ferðaskrifstofunnar.

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.