ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026

HELSTU UPPLÝSINGAR
 
  3 dagar / 2 nætur   Á eigin vegum
  9. - 11. 5. 2026   Fararstjóri: 
  Lágm. 6/ Hám. 10     Brandur Jón H. Guðjónsson         
   Fullt fæði*    
 
 
HJÓLAFERР- MEÐ SÖGULEGU ÍVAFI - UM OG UMHVERFIS SKAFTÁRELDAHRAUNIN
 
Einar mestu hörmungar sem yfir íslenska þjóð hafa gengið voru Skaftáreldarnir (júní 1783 - febrúar 1784) og allt sem þeim fylgdi. Hjólað verður á laugardegi og sunnudegi um og umhverfis hluta af þeim hraunum sem þá runnu í nágrenni Kirkjubæjarklausturs og eru í dag kölluð Eldhraun og Brunahraun, og ýmislegt úr sögu svæðisins rifjað upp. Þriðja dagleiðin verður ákveðin í takt við aðstæður þegar þar að kemur
 
Hjólaleiðirnar eru að mestu tiltölulega sléttlendar, en vissulega verður undirlagið mis gróft; bundið slitlag í miklum minnihluta, að hluta til almennir "sveitavegir" en þó aðallega mis grófir jeppaslóðar, sumir þeirra í gegnum hraun og lausan sand og því á köflum þungt og seinfarið. Á einstaka stað óbrúaðir lækir.
Áhersla á að njóta en ekki þjóta!

Ferðin hentar öllu þokkalega vönu hjólafólki, en aðstæður eru frekar krefjandi á köflum, sérstaklega fyrsta daginn, og reyna talsvert á færni og úthald þátttakenda, svo sú dagleið tekur talsvert lengri tíma en kílómetrafjöldinn segir til um.

Hver og einn þátttakandi kemur með sitt eigið framdempandi eða fulldempandi (raf)fjallahjól til þess að nota í ferðinni – að það sé á breiðum og grófum dekkjum er skilyrði

 

Dagskrá:

Laugardagurinn 9. maí – mæting kl. 10:30 að morgni á bílastæði vestast í Eldhrauni, nálægt brúnni yfir Eldvatn í Skaftártungu (sjá mynd í myndabankanum neðst á síðunni).

Hjólað um mis hrjóstrugt undirlendi um og með hrauntungu Skaftáreldahrauns austur á þjóðveg (Meðallandsvegur 204). Eftir bundnu slitlagi upp í Landbrot og síðan eftir fáförnum jeppaslóða upp á Kirkjubæjarklaustur (u.þ.b. 47 km)  - bílar sóttir - kvöldverður og gisting 

 

Sunnudagurinn 10. maí – Ekið að Orustuhól og síðan hjólað um og umhverfis hluta af Eystra-Eldhrauni/Brunahrauni og síðan ekið að Klaustri aftur.

Hversu langt eða mikið ræðst mjög af aðstæðum og stemningu innan hópsins

 

Mánudagurinn 11. maí – Hér verða, eins og daginn á undan, aðstæður og stemning látin ráða því hversu langt eða mikið verður hjólað, af nógu er að taka 

 

Algjör hjálmaskylda er í öllum okkar hjólaferðum 😊

Innifalið í verði ferðarinnar:

  • Gisting í tvær nætur
  • Morgunverðir
  • Nesti fyrir tvo hjóladagana
  • Þriggja rétta kvöldverður á laugardagskvöldið
  • Þriggja rétta kvöldverður á sunnudagskvöldið

Fararstjórn - Brandur Jón Hrannarson Guðjónsson

 

Ekki innifalið:

  • Akstur til og frá Kirkjubæjarklaustri í upphafi og lok ferðar
  • Akstur til og frá upphafs- og endastöðum hjólaleiða
  • Nesti á laugardeginum
  • Drykkir með kvöldverðum
  • Annað það sem ekki er talið upp í "innifalið"

 

Verð:

Á mann í tvíbýli   129.900

Á mann í einbýli  159.900

Staðfestingargjald, kr. 50.000 þarf að greiða strax við skráningu í ferðina, það er gert með því að nýta aðra hvora leiðina sem í boði er við skráninguna - millifærslu eða greiðslu með kreditkorti.

Eftirstöðvar verða innheimtar með tölvupósti þegar nær dregur 

 


 

Búnaðarlisti

  • (Raf)fjallahjól í góðu ástandi 
  • Auka slanga (a.m.k. ein vara slanga með, gæta að dekkjastærð og ventli við kaup á slöngu svo þau passi við stærð gjarðarinnar) 
  • Sjúkrapúði eða a.m.k. plástrar að grípa til, ef ... 
  • Hitabrúsi til að nota undir kaffi eða heitt vatn (kakó?) 
  • Nestisbox 
  • Bakpoki – og/eða góð hjólataska 
  • Fatnaður í takt við veðurútlit 
  • HJÁLMUR!
  • Sólarvörn!

Verð frá 129.900 kr

Staðfestingargjald 50.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026
ELDHRAUNIN Í AUSTURSVEITUM 2026

Ábendingar:

Lágmarks þátttaka er 6 manns. Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferðina ef þátttaka er ekki næg, og mun þá endurgreiða að fullu.

Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir hf., fararstjórar hennar og bílstjórar þegar það á við, áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.

Hvert og eitt tekur þátt í ferðinni á eigin ábyrgð!

Sjúkdóma-, slysa- og forfallatryggingar eru ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í flestum tilfellum eru slíkar tryggingar innifaldar í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum og er viðskiptavinum bent á nauðsyn þess að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála.

Krafa er gerð um að þátttakendur séu í líkamlegu og andlegu standi til þess að taka þátt í dagskrá ferðarinnar og ferðaskrifstofan áskilur sér og fararstjórum allan rétt til þess að vísa þátttakendum sem ekki uppfylla þessi skilyrði úr ferðinni og er viðkomandi þar með búinn að fyrirgera rétti sínum til notkunar á þjónustu þeirri sem ferðin er byggð á og án þess að til greiðslu kostnaðar eða endurgreiðslu komi af hálfu ferðaskrifstofunnar.

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.