GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST

HELSTU UPPLÝSINGAR
  8 dagar / 7 nætur   Akstur til og frá Feneyja flugvelli
  18. - 25. 9. 2026   Flug með Icelandair og flugvallaskattar
  Hámark 20 / lágmark 10   Fararstjóri: Sara Jónsdóttir
  Hálft fæði *  

 

ISTRIASKAGINN KALLAR! GOLF, LÚXUS, PADEL OG PROSECCO Í KRÓATÍU

Ný og spennandi golfferð þar sem lúxus, golf og padel mætast á einu af fegurstu strandsvæðum Evrópu.  Adriatic Istria Resort, frábært fimm stjörnu hótel við Adriahafið!

Flogið með Icelandair beint til Feneyja á Ítalíu, stuttur akstur

Stolt bjóðum við einstaka golfferð á Hotel Adriatic Istria, fimm stjörnu lúxus golf- og heilsulindarhótel við strendur Króatíu. Hótelið og golfvöllurinn eru staðsett við sjávarsíðuna í nágrenni bæjanna Savudrija og Umag, nyrst á Adriahafsströnd Istriaskagans. Þaðan er útsýni út á Adriahafið og yfir til Ítalíu, og til Slóveníu, sem blasir við handan við litla Piran flóann.

Hótelið býður upp á allt sem hugsast getur; hágæða gistingu, frábæran mat, golfvöll og æfingasvæði, verðlaunaða 3.000m2 heilsulind, þrjár sundlaugar, tennis og padel velli hinu megin við götuna, og mjög góða sólbaðsaðstöðu við sjóinn. Það er nútímalegt, með 186 glæsileg herbergi og svítur, og með sínar fimm stjörnur býður það upp á þægindi og þjónustu í hæsta flokki.

Istriaskaginn er þekktur fyrir dásamlegt Miðjarðarhafsloftslag, sögulegan arkitektúr, einstaka matargerð, verðlaunuð vín og ólífuolíur, trufflur, fjölbreytta útivistarmöguleika, og fagurt útsýni, og fegurð sólarlagsins við Adríahafið er eitthvað sem seint gleymist!

Ath. hótelið hét áður Kempinski Hotel Adriatic Istria Croatia / nafnbreyting tekur gildi núna á fyrstu dögum mars 2026 og verið er að uppfæra heimasíðu

Golf og Padel í hæsta gæðaflokki

Golf: Spilað er á Golf Adriatic | PGA National Croatia, fyrsta 18 holu PGA meistara-golfvelli Króatíu. Völlurinn er hannaður til að nýta náttúrulegt og fallegt landslag Istriaskagans og býður upp á ágætlega krefjandi en skemmtilega upplifun fyrir kylfinga á öllum getustigum. Völlurinn er PAR 72, 6.360 metrar á 80 hekturum. Það eru einungis 300 metrar frá hótelinu yfir á golfvöllinn

Padel: Fyrir þau sem elska Padel, eða vilja prófa það og fá enn meiri hreyfingu, er padel aðstaðan á svæðinu til fyrirmyndar. Frábær leið til að hrista hópinn saman og njóta íþróttarinnar í sólinni. Svo er líka hægt að spila tennis, körfubolta, leigja sér hjól og ýmislegt fleira.

Slökun og spa

Eftir góðan dag á golf- og padel völlunum er kjörið að slaka á í hinni glæsilegu Carolea Spa heilsulind hótelsins, eða í sundlaugum þess og á einkaströndinni við sjóinn.

Matur, vín og sælkeraupplifun

Matargerðin á Istriaskaga er einstök. Hér mætast ítölsk áhrif og króatískir sælkeraréttir, ferskt sjávarfang, ólífuolía, og hinir heimsþekktu trufflusveppir héraðsins, ásamt ótrúlega góðum vínum.

Škocjanske jame, skoðunarferð

Einn daginn verður farið í hálfs dags ferð til Slóveníu, til að skoða hið ótrúlega náttúruvætti Škocjanske jame, sem eru annars vegar dropasteinshellar og hins vegar neðanjarðargljúfur árinnar Reka. Að fara þar um er mögnuð upplifun!

 

Fararstjóri verður Sara Jónsdóttir, golfari, skíðari, badmintonkona og padel unnandi

 

Verð:

Verð á mann í tvíbýli     469.900

Verð á mann í einbýli    534.900

Lágmarks þátttaka er 10 manns / hámark 20

 

Innifalið

  • Beint flug með Icelandair* til Feneyja (Marco Polo flugvöllur (VCE)), innfalið þar eru flugvallarskattar, ein innrituð taska (hámark 23 kg.) og handfarangur (hámark 10 kg.) 
    • 18.09.2026: Flug FI 948 Keflavík – Feneyjar, brottför 08:20 lending 15:00
    • 25.09.2026: Flug FI 949 Feneyjar – Keflavík, brottför 16:10 lending 18:50
  • Flutningur á golfsetti í fluginu
  • Akstur milli flugvallar og hótels (uþb. 2 1/2 klst.)
  • Gisting á 5 stjörnu lúxushóteli í 7 nætur
  • 6 golfdagar - vallargjöld af einum 18 holu hring á dag á Golf Club Adriatic golfvellinum
  • Ótakmarkaður aðgangur að heilsulind hótelsins og sundlaugum bæði úti og inni
  • Ótakmarkaður aðgangur að einkaströnd hótelsins við Adriahafið
  • Hálft fæði* - morgunverðarhlaðborð og þriggja rétta kvöldverðir eða hlaðborð alla dagana
  • Drykkjapakki í 2 klst. við kvöldverðaborðin - ótakmarkað magn af léttvíni, bjór, vatni, kaffi, gosdrykkjum
  • 1/2 dagsferð til Skocjanske jame dropasteins- og neðanjarðargljúfursins, aðgangur að því, og enskumælandi leiðsögn
  • Íslenskur fararstjóri

Ekki innifalið:

  • Hádegis/miðdegis hressingar
  • leiga á reiðhjólum (valkvæður möguleiki)
  • vallargjöld og aðstaða á tennis og padel völlum (valkvæður möguleiki)
  • Annað það sem ekki er talið upp í "innifalið" hér fyrir ofan
  • Golfbílar – ath. öll verð eru fyrir einn dag:
    • 18 holur: 45,00 €
    •   9 holur: 30,00 €
    • (H)eldriborgara afsláttur af golfbílaleigu (75+): -30%
  • Golfkerrur og búnaður – ath. öll verð eru fyrir einn dag:
    • Golfkerra: 5,00 €
    • Rafdrifin golfkerra: 18,00 €
    • Golfsett: 30,00 €
  • Æfingasvæði:
    • Boltaleiga 40 boltar (1 Token): 5,00 €
    • Boltaleiga 400 boltar (10 Tokens): 45,00 €

Golfvöllurinn

Hér má sjá nánari upplýsingar um Golf Adriatic | PGA National Croatia golfvöllinn

Skiper æfingasvæðið er við hliðina á hótelinu, handan götunnar, rétt við golfvöllinn. Þar er hægt að stunda ýmsar íþróttir; fótbolta, körfubolta, strandblak, tennis, padel o.fl. Ath. að það er ekki innifalið í verði ferðarinnar

__________________________________________________________________________________________________

Greiðslur og gjalddagar:

Staðfestingargjald, kr. 100.000 þarf að greiða strax við skráningu í ferðina - ath. að það er óafturkræft ef þátttakandi hættir við.

Til greiðslu þess eru tvær leiðir sem valið er á milli við skráningu í ferðina; millifærslu í gegnum heimabanka eða með kreditkorti.

 

Þegar nær dregur verður með tölvupósti kallað eftir lokagreiðslu þátttökugjaldsins

 

Skráning hér á síðunni eða með því að senda tölvupóst á ferdir@fjallakofinn.is


Farþegar í ferðum Fjallakofans-Ævintýraferða / Íslandsvina hf. fá sérkjör í Fjallakofanum

Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa 

 

Verð frá 469.900 kr

Staðfestingargjald 100.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST
GOLF LÚXUS Í KRÓATÍU Í HAUST

Ábendingar:

Lágmarks þátttaka er 10 manns. Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferðina ef þátttaka er ekki næg, og mun þá endurgreiða að fullu.

Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir hf., fararstjórar hennar og bílstjórar, áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.

Hvert og eitt tekur þátt í ferðinni á eigin ábyrgð!

Sjúkdóma-, slysa- og forfallatryggingar eru ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í flestum tilfellum eru slíkar tryggingar innifaldar í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum og er viðskiptavinum bent á nauðsyn þess að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála.

Krafa er gerð um að þátttakendur séu í líkamlegu og andlegu standi til þess að taka þátt í dagskrá ferðarinnar og ferðaskrifstofan áskilur sér, fararstjórum og samstarfsaðilum, allan rétt til þess að vísa þátttakendum sem ekki uppfylla þessi skilyrði úr ferðinni og er viðkomandi þar með búinn að fyrirgera rétti sínum til notkunar á þjónustu þeirri sem ferðin er byggð á og án þess að til greiðslu kostnaðar eða endurgreiðslu komi af hálfu ferðaskrifstofunnar.

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.