 |
6 dagar / 5 nætur |
 |
Allur akstur skv. dagskrá |
 |
1. - 6. 4. 2021 |
 |
Flug og flugvallaskattar |
 |
Fullt fæði |
 |
Fararstjóri: Steingrímur Karlsson |
 |
Lágm. 4 / hám. 10 |
|
|
NÁNAR UM FERÐINA
Hvað ætlar þú að gera um páskana?
Herðubreið, Hafrahvammagljúfur, Snæfell, Laugarfell, Jökuldalsheiði, Möðrudalsfjallgarðar, Vesturöræfi, Sænautasel, Urgur, Ánavatn ... svona mætti lengi telja öll þau meira og minna þekktu örnefni staða sem farið verður um eða eru á næsta leiti í þessari flottu skíðagönguferð um hið margfræga og hrikalega víðerni norðan Vatnajökuls – m.a. hreindýraslóðir, sögusvið Sjálfstæðs fólks Laxness og athafnasvæði Kárahnjúkavirkjunar!
Fimm skíðadagar frá Möðrudal, um Sænautasel, Jökuldalinn, Laugarvalladal, meðfram Hafrahvammagljúfrum og yfir í Fljótsdalinn. Gist í skálum á leiðinni, fyrstu fjórar næturnar í svefnpokagistinu og þá síðustu í uppbúnum rúmum í Óbyggðasetrinu í Fljótsdal. Þátttakendur þurfa að vera í ágætu skíðagönguformi og þarna verður farið um á ferðaskíðum (stálkanta utanbrautargönguskíðum) með bakpoka fyrir dagsnestið og fatnað. Svefnpokum og öðrum farangri trússað á milli gististaðanna
Komdu á eigin vegum til Egilsstaða eða Möðrudals - eða fljúgðu áhyggjulaus með Air Iceland Connect inn í enn eitt ævintýrið okkar fyrir austan - Ein með öllu, MJÖG MIKIÐ innifalið!
Þessi ferð er farin í samstarfi við Óbyggðasetrið í Fljótsdal.
Verð kr. 188.400 með flugi og flugvallasköttum (Reykjavík – Egilsstaðir – Reykjavík)
Verð kr. 147.400 án flugs – upphaf og endir ferðar á bílastæði við Egilsstaðaflugvöll eða eftir nánara samkomulagi.
Veldu "Nánari upplýsingar" hérna til hliðar til þess að lesa nánar um dagleiðir o.fl.