KVARNERFLÓINN Í KRÓATÍU OG PERLUR Í SLÓVENÍU - SEPT.

HELSTU UPPLÝSINGAR

  12 dagar / 11 nætur   Ferðir til og frá flugvelli
  14. - 25. 9. 2023   Flug og flugvallaskattar
  Lágm. 12 / hám. 18   Fararstjórar: Halldór Hreinsson, Robert Ciglar og Zvone Hocevar
  Hálft fæði  
     
RAFHJÓLA- OG SIGLINGARFERÐ UM KVARNERFLÓANN Í KRÓATÍU OG VALDAR PERLUR Í SLÓVENÍU

UPPSELT!

Þessi ferð er algjört ævintýri! Kvarner flóinn í Króatíu er fallegt og sólríkt svæði og þar eru fjölmargar eyjar, hólmar og sker. Farið er um nokkrar af stærri eyjunum á reiðhjólum en gist og snæddir morgun- og hádegis eða kvöldverðir um borð í báti sem ferjar þátttakendur á milli eyjanna, en sá bátur er frátekinn sérstaklega fyrir þennan hóp. Að lokinni hverri dagleið er hægt að sitja í sólbaði uppi  á þilfari, rölta um og skoða bæinn sem dvalið er í,  eða fara í sjósund. Dagleiðirnar eru uþb. 15 – 50 km, mis erfiðar, og vegna landfræðilegrar stöðu þarf alla dagana að fara um mis langar og mis brattar brekkur. Á rafhjólunum eru þær allar vel yfirstíganlegar og nægur er líka tíminn til að klára því ekkert liggur á. Erfiðleikastig dagleiða er „létt“ til „miðlungs erfið“. Þetta er ekki keppnisferð og þátttakendur þurfa ekki að vera í neinu ofur formi, en mikilvægt að þeir séu vanir hjólreiðum. Þetta er ferð fyrir “venjulegt” fólk til að njóta og upplifa!

Og ef einhver vill ekki koma með í hjólaferð dagsins getur viðkomandi verið um borð í bátnum og nýtt tímann til sólbaða eða bæjarrölts! Vænta má lofthita um 18-24°C og sjávarhita um 20-24°C.

Siglingarhluti ferðarinnar er ekki hlaðin neinum lúxus, káeturnar eru litlar og olnbogarýmið takmarkað, en hér, eins og oft áður, mun sannast hið fornkveðna að „þröngt mega sáttir sitja“! Báturinn heitir MS Albatros, byggður 1935 og hefur allur verið endurinnréttaður undanfarin ár. Allar káetur eru tveggja manna, og baðherbergi með salerni og sturtu er í hverri káetu. Allt mjög snyrtilegt og vel um gengið og áhöfnin mjög áfram um að allir njóti dvalarinnar um borð sem best.

Miðað er við að þátttakendur leigi sér góð framdempandi rafmagnsfjallahjól, sem eru kjörin fyrir þessa ferð.

Athugið að einnig er hægt að skrá sig í ferðina án þess að taka þátt í hjólaferðunum, en njóta samt siglingarinnar, samverunnar með hinum í hópnum meginhluta dagsins og taka þátt í dagskránni að öðru leyti.

Samtals eru það 9 káetur sem eru lausar fyrir hópinn og það takmarkar hámarks fjölda þátttakenda í ferðinni.

Einn dagur í Ljubljana í upphafi ferðar og í seinni hlutanum farið í Skocjan dropasteinshella- og neðanjarðar árgljúfrið og einnig dvalið í tvær nætur á mjög góðu hóteli við Bled-vatnið - hvort tveggja gljúfrið og Bled vatnið og nágrenni eru miklar náttúruperlur sem setja punktinn yfir i-ð í þessari flottu hjóla-, útivistar- og upplifunarferð. 

Smellið á rauða  Nánari upplýsingar  hnappinn hér ofar til hægri til þess að skoða dagskrána, verð o.fl.

Verð frá 499.900 kr

Staðfestingargjald 125.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð Nánari upplýsingar

Ábendingar:
Fjallakofinn Ævintýraferðir/ Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferð átta vikum fyrir brottför ef þátttaka er ekki næg.
Fjallakofinn Ævintýraferðir/ Ferðaskrifstofan Íslandsvinir og fararstjórar hennar áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til. Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutrygginga fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd. 

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.