RAFHJÓLA- OG SIGLINGARFERÐ UM KVARNERFLÓANN Í KRÓATÍU
UPPFÆRT FRÁ FYRRI ÁRUM - MUN STYTTRI AKSTUR Í UPPHAFI OG LOK FERÐAR
Þessi ferð er algjört ævintýri! Kvarner flóinn í Króatíu er fallegt og sólríkt svæði og þar eru fjölmargar eyjar, hólmar og sker. Farið er um nokkrar af stærri eyjunum á reiðhjólum en gist og snæddir morgun- og hádegis eða kvöldverðir um borð í báti sem ferjar þátttakendur á milli eyjanna, en sá bátur er frátekinn sérstaklega fyrir þennan hóp. Að lokinni hverri dagleið er hægt að sitja í sólbaði uppi á þilfari, rölta um og skoða bæinn sem dvalið er í, og svo er reglulega stoppað á siglinunni milli eyjanna til að fara í sjósund. Dagleiðirnar eru uþb. 15 – 50 km, mis erfiðar, og vegna landfræðilegrar stöðu þarf alla dagana að fara um mis langar og mis brattar brekkur sem á rafhjólum verða ekki fyrirstaða, og það liggur heldur ekkert á. Erfiðleikastig dagleiða er „létt“ til „miðlungs erfið“. Þetta er ekki keppnisferð og þátttakendur þurfa ekki að vera í neinu ofur formi, en vanir hjólreiðum. Þetta er ferð fyrir ,,venjulegt” fólk til að njóta og upplifa!
Og ef einhver vill ekki koma með í hjólaferð dagsins getur viðkomandi verið um borð í bátnum og nýtt tímann til sólbaða eða bæjarrölts! Vænta má lofthita um 18-24°C og sjávarhita um 20-24°C.
Athugið að einnig er hægt að skrá sig í þessa ferð án þess að taka þátt í hjóladagskránni!
Ferðin er ekki hlaðin neinum lúxus, káeturnar eru litlar og olnbogarýmið takmarkað, en hér, eins og oft áður, mun sannast hið fornkveðna að „þröngt mega sáttir sitja“! Báturinn heitir MS Albatros, byggður 1935 og hefur allur verið endur-innréttaður undanfarin ár. Allar káetur eru tveggja manna, og baðherbergi með salerni og sturtu eru í hverri káetu. Allt mjög snyrtilegt og vel um gengið og áhöfnin mjög áfram um að allir njóti dvalarinnar um borð sem best.
Í lok ferðar dvalið í tvær nætur við Bled vatnið, þá miklu náttúruperlu - seinna kvöldið verður skroppið yfir í þorp í nágrenninu og snædd stórkostleg fjölrétta Michelin-stjörnu máltíð, algjör upplifun!
Miðað er við að þátttakendur leigi sér góð framdempandi rafmagnsfjallahjól, sem eru kjörin fyrir þessa ferð.
Samtals eru það 9 káetur sem eru lausar fyrir hópinn svo hámarkið er 18 manns!
Algjör hjálmaskylda er í öllum okkar hjólaferðum 😊
Ferðaráætlun:
Dagur 1 – föstudagurinn 11. september
Flogið til Feneyja / ekið til Ljubljana
Flogið með Icelandair til Feneyja. Áætluð lending þar er kl 15:00 og við tekur akstur með rútu til Ljubljana í Slóveníu. Á leiðinni verður stoppað einu sinni til hressingar og næringar.
Dagur 2 til 8 – laugardagurinn 12. til föstudagsins 18. september
Eyjarnar í Kvarner flóanum
Laugardagurinn hefst á heimsókn í hjólaleiguna þar sem hjólin verða prófuð og stillt af fyrir hvern og einn. Síðan verður ekið niður til Kvarnerflóans í Króatíu (u.þ.b. 2 ½ klst akstur) og í Rijeka verður farið um borð í MS Albatros. - Og þar með hefst hjólaferðin sjálf því að þann dag og þá næstu verður farið í ferðir um nokkrar af eyjunum í flóanum. Á meðan færir báturinn sig og tekur hópinn um borð á nýjum stað. Gist verður um borð í Albatros, sem einnig ferjar hópinn á milli eyjanna.
Farið verður um fimm stærstu eyjarnar sem að hver og ein hefur sína sérstöðu og sjarma; Krk með samnefndan bæ og Vrbnik, þar sem að hið fræga Zlahtina hvítvín er framleitt; Rab með fallegan bæ og Kalifront skóginn; Pag með margra alda gömlum náttúrulegum ólívutrjám og Paski Sir, einn mest verðlaunaða sauðaost í heimi; Losinj með fallegar víkur og tvo vinalega samnefnda bæi; og Cres með fallega útsýnisstaði og samnefndan bæ.
Þó að svæðið sé ekki stórt er samt talsverður munur á landslaginu á milli eyjanna. Almennt er lítill gróður, og þarna er allt frá því að vera berangurslegar klappir vegna staðbundinna vetrarvinda, en síðan taka við svæði með mörgum framandi trjátegundum og fjölbreyttri flóru; ótalmargar fallegar víkur; vinaleg þorp og bæir sem kúra niður undir sjó í skjólsælum vogi bera langri byggðasögu vitni; landbúnaður og fiskveiðar o.s.frv.
Hver dagur er ný upplifun! Eðlilega, vegna þess að alltaf er byrjað við sjávarmál, er alla dagana um einhverja hækkun að ræða og farið í allt frá uþb. 100 m.y.s. upp í uþb. 230 m.y.s. og samanlögð hækkun leiðarinnar getur þá orðið 300-1000 metrar. Dæmi:
16 km/mesta hæð 197 m.y.s./samanlögð hækkun 408m –
47 km/mesta hæð 225 m.y.s./ samanlögð hækkun 943m –
35 km/mesta hæð 100 m.y.s./ samanlögð hækkun 720m –
24 km/mesta hæð 105 m.y.s./ samanlögð hækkun 515m -
Hjólaleiðirnar eru ýmist á sléttu malbiki, á malarstígum eða á grófum stígum, en slíkt undirlag er í miklum minnihluta og ferðahraðinn að sjálfsögðu alltaf í takt við aðstæður.
Athugið að þessar tölur eru fyrst og fremst til viðmiðunar, aðstæður og stemning gætu breytt þessu í einhverjum tilfellum!
Seinnipart föstudagsins verður komið til hafnar í Rijeka og í beinu framhaldi af því verður ekið til Lipica í Slóveníu.
Dagur 9 – laugardagurinn 19. september
Við Bled vatnið
Skoðunarferð um nágrenni Lipica, auk þess sem hestabúgarðurinn þar verður heimsóttur.
Um kvöldið verður svo farið í næsta bæ til þess að snæða fjölrétta algjöra stjörnu máltíð hjá einum af bestu kokkum Slóveníu!
Dagur 10 – sunnudagurinn 20. september
Heim á leið
Lagt af stað með rútu til Feneyja flugvallarins, flugið þaðan er kl. 16:10 og áætluð lending á Íslandi um kl. 18:50
Brandur Jón H. Guðjónsson verður með hópnum allan tímann. Robert Ciglar stýrir hjólaferðinni, hjólin eru leigð hjá honum og hann sér um alla þjónustu við þau meðan á ferðinni stendur.
Innifalið í verði ferðarinnar
Flug og flugvallaskattar:
11.09.2026: Keflavík (KEF) - Feneyjar (VCE), áætluð brottför 08:20 lending 15:00
20.09.2026: Feneyjar (VCE) – Keflavík (KEF), áætluð brottför 16:10 lending 18:50
Flogið með Icelandair - 1 taska (hámark 23 kg.) og 1 handfarangurstaska (hám. 10 kg.)
Vinsamlegast athugið að flugtímar geta breyst.
Gisting:
Gisting í eina nótt á hóteli í Ljubljana, sex nætur um borð í Albatros og tvær nætur á góðu hóteli í Lipica
Matur:
Morgunverðir innifaldir alla dagana
Hádegis eða kvöldverðir - Innifalin ein máltíð á dag um borð í Albatros alla siglingardagana (frá laugardeginum 12. til föstudagsins 18. september). Bæði kvöldin í Lipica - á laugardagskvöldinu farið í næsta bæ til að snæða fjölrétta stjörnu máltíð!
Vatn eftir þörfum um borð í Albatros, einnig til þess að fylla á vatnsbrúsa fyrir hjólaferðirnar
Flutningur:
Allur akstur og siglingar samkvæmt áætlun ferðarinnar
Fararstjórn:
Brandur Jón H. Guðjónsson og Robert Ciglar, enskumælandi Slóveni sem þekkir svæðið mjög vel og hefur leitt hópana okkar þarna frá upphafi
Ekki innifalið
Hádegisverðir eða kvöldverðir, einn á dag á siglingardögunum, einnig kvöldverður á komudegi
Drykkir með inniföldum hádegis- og kvöldverðum (drykkir um borð í Albatros greiddir í lok siglingar)
Hjólaleiga = raf-fjallahjól € 400,- (greiðist í seðlum beint til leigunnar laugardaginn 12. september)
Hafnargjald € 50,- (greiðist í seðlum beint til skipstjórans í upphafi ferðar, um leið og sigling hefst)
Þjórfé til áhafnar Ms. Albatros, € 50,- á hvern þátttakanda í ferðinni (greiðist í seðlum beint til áhafnarinnar í lok siglingarinnar)
Annað það sem ekki er talið upp í „innifalið“
Verð, greiðslur og gjalddagar:
Verð á mann í tveggja manna herbergi og káetu 559.900
Aukagjald fyrir eins manns herbergi á hótelunum í upphafi og lok ferðar og einbýli í káetu 60.000
Staðfestingargjald, kr. 100.000 þarf að greiða strax við skráningu í ferðina - ath. það er óafturkræft ef þátttakandi hættir við
Til greiðslu þess eru tvær leiðir:
- Með millifærslu í gegnum heimabanka - kt. 470898-2919 (Íslandsvinir hf.) banki 0328-26-000288
ath. að mjög áríðandi er að láta heimabankann senda staðfestingu á greiðslunni á netfangið ferdir@fjallakofinn.is
- Með kreditkorti í gegnum þennan tengil hér:
https://securepay.borgun.is/SecurePay/Ticket.aspx?ticket=4Y2AkoA8t
* Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa