LEYNDAR OG LJÓSAR PERLUR #3 - RAFHJÓLAFERÐ Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU

HELSTU UPPLÝSINGAR
 
   2 dagar / 1 nótt    Á eigin vegum
   4. - 5. 8. 2026  Fararstjóri: 
   Lágm. 5/ Hám. 10    Brandur Jón H. Guðjónsson         
   Morgunverður    
 
 
 TREYSTU FARARSTJÓRANUM - HANN KANN ÞETTA KARLINN!
EINA SEM HÆGT ER AÐ SEGJA FRÁ ER AÐ DAGSKRÁIN VERÐUR FJÖLBREYTT OG FLOTT! 
 

Í Vestur-Skaftafellssýslu eru margar náttúruperlur, sumar meðal þeirra mest heimsóttu á landinu, en aðrar minna þekktar og ekki endilega aðgengilegar öðrum en þeim sem þekkja vel til.

Brandur Jón er heimamaður, þekkir marga fallega staði á svæðinu og sýnir nokkra þeirra í þessari ferð – hverja nákvæmlega verður ekki gefið upp – en byggist á trausti þátttakendanna til fararstjórans. Hluti af því sem farið verður um er þjóð- og jafnvel heimsþekkt, en annað svo vel varðveitt að þátttakendur verða að gefa loforð um þagmælsku og bannað verður að ,,pósta" myndum frá þeim stöðum!

Fyrst og fremst er þetta fjallahjólaferð, en stundum verður hjólunum lagt og gengið aðeins til þess að skoða eitthvað betur.

Hver hjólaleið verður að almestu leiti á malarvegum og jeppaslóðum og undirlagið mis gróft, og því á köflum seinfarið. Á einstaka stað óbrúaðir lækir - nokkrir km á bundnu slitlagi seinni daginn.

Ferðin hentar öllu þokkalega vönu hjólafólki – áhersla á að njóta en ekki þjóta!

Hver og einn þátttakandi kemur með sitt eigið fjallahjól til þess að nota í ferðinni - ölfug og gróf dekk algjört skilyrði - ath. að þetta er frábær ferð fyrir raf-fjallahjól!

Lágmark 5 manns / hámark 10 manns

Dagskrá:

Þriðjudagurinn 4. ágúst – mæting kl 09:00 á bílastæði í Eldhrauni, rétt austan nýju Eldvatnsbrúarinnar við Skaftártunguafleggjarann. Ekið þaðan að upphafsstað hjólaferðarinnar, hjólað um leyndar slóðir og fallegt svæði og endað aftur á sama stað seinnipartinn.

Gisting í flottum og þægilegum Superior herbergjum á hótel Vík í Mýrdal 

Áætluð hjólaleið uþb. 30-35 km / áætluð gönguleið uþb. 2-3 km

 

Miðvikudagurinn 5. ágúst – hjólaður hringur um leyndar og ljósar slóðir. Dagskrá líkur seinnipart þess dags 

Áætluð hjólaleið uþb. 20-25 km 

 

Þjónusta & verð:

 

Innifalið:

- Gisting og morgunverður (sjá hér ofar)

- Fararstjórn

 

Ekki innifalið:

-  Akstur að og frá upphafsstöðum hjólaleiðanna 

-  Kvöldverður í Vík og annað það sem ekki er talið upp í „innifalið“

 

Verð:

Verð á mann í tvíbýli    99.900

Verð á mann í einbýli 139.900

Eins og nafn ferðarinnar gefur tilefni til er ekki hægt að birta neinar myndir af hjólaleiðunum í ferðinni! Eina sem hægt er að lofa er að dagskráin verður fjölbreytt og flott!

 

Skráning hér á heimasíðunni okkar. Staðfestingargjald, kr. 50.000 þarf að greiða strax við skráningu, ef þátttaka er ekki næg verður það endurgreitt, en að öðru kosti er það óendurkræft ef þátttakandi hættir við.

 

Búnaðarlisti

  • (Raf)fjallahjól í góðu ástandi 
  • Auka slanga (a.m.k. ein vara slanga með, gæta að dekkjastærð og ventli við kaup á slöngu svo hún passi við stærð gjarðarinnar) 
  • Sjúkrapúði eða a.m.k. plástrar að grípa til, ef ... 
  • Nesti
  • Bakpoki 
  • Fatnaður í takt við veðurútlit 
  • HJÁLMUR!

 

Farþegar í ferðum Íslandsvina / Fjallakofans- Ævintýraferða fá sérkjör í Fjallakofanum

 

Verð frá 99.900 kr

Staðfestingargjald 50.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð
LEYNDAR OG LJÓSAR PERLUR #3 - RAFHJÓLAFERÐ Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
LEYNDAR OG LJÓSAR PERLUR #3 - RAFHJÓLAFERÐ Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
LEYNDAR OG LJÓSAR PERLUR #3 - RAFHJÓLAFERÐ Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
LEYNDAR OG LJÓSAR PERLUR #3 - RAFHJÓLAFERÐ Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
LEYNDAR OG LJÓSAR PERLUR #3 - RAFHJÓLAFERÐ Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
LEYNDAR OG LJÓSAR PERLUR #3 - RAFHJÓLAFERÐ Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
LEYNDAR OG LJÓSAR PERLUR #3 - RAFHJÓLAFERÐ Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
LEYNDAR OG LJÓSAR PERLUR #3 - RAFHJÓLAFERÐ Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
LEYNDAR OG LJÓSAR PERLUR #3 - RAFHJÓLAFERÐ Í VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU

Ábendingar:

Lágmarks þátttaka er 5 manns. Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferðina ef þátttaka er ekki næg, og mun þá endurgreiða að fullu.

Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir hf., fararstjórar hennar og bílstjórar, áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.

Hvert og eitt tekur þátt í ferðinni á eigin ábyrgð!

Sjúkdóma-, slysa- og forfallatryggingar eru ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í flestum tilfellum eru slíkar tryggingar innifaldar í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum og er viðskiptavinum bent á nauðsyn þess að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála.

Krafa er gerð um að þátttakendur séu í líkamlegu og andlegu standi til þess að taka þátt í dagskrá ferðarinnar og ferðaskrifstofan áskilur sér og fararstjórum allan rétt til þess að vísa þátttakendum sem ekki uppfylla þessi skilyrði úr ferðinni og er viðkomandi þar með búinn að fyrirgera rétti sínum til notkunar á þjónustu þeirri sem ferðin er byggð á og án þess að til greiðslu kostnaðar eða endurgreiðslu komi af hálfu ferðaskrifstofunnar.

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.