MEÐ GUÐMUNDI JAKOBS TIL SCHLADMING - LYFTUPASSI INNIFALINN!
HELSTU UPPLÝSINGAR
 |
8 dagar / 7 nætur |
 |
Ferðir til og frá flugvelli |
 |
20. - 27. 2. 2027 |
 |
Flug og flugvallaskattar (Icelandair til Munchen*) |
 |
Hámark 25 |
 |
Fararstjórn:Guðmundur Jakobsson |
 |
Hálft fæði |
|
|
GOTT HÓTEL RÉTT OFAN VIÐ SCHLADMING - MÖRG FLOTT SKÍÐASVÆÐI Í NÁGRENNINU
Skíðasvæðin:
Beint upp af bænum og í næsta nágrenni hans eru fjögur fjöll - Hauser Kaibling (2.015 m), Planai (1.906 m), Hochwurzen (1.850 m) og Reiteralm (1.860 m) - með samræmdu skíðabrekku- og lyftuneti með rúmlega 120 km af troðnum skíðabrekkum, þannig að aldrei þarf að taka af sér skíðin til þess að fara á milli svæða.
6 daga lyftupassi er innifalinn í verði ferðarinnar og hann gildir auk þess í skíðarúturnar á svæðinu til þess að fara á þessa staði, eða skreppa yfir á Galsterberg (1.984 m), Fageralm (1.885 m), Ramsau am Dachstein (1.100 – 1.300 m) og Dachstein jökulinn (2.700 m).
Nánar má lesa um skíðasvæðin hér
Hótelið:
Hotel Erlebniswelt Stocker 4**** er mjög vel staðsett undir Hochwurzen, rétt við eina af lyftum svæðisins og er því „ski in/ski out“ hótel. Frá hótelinu er stutt niður í miðbæ Schladming.
Á Erlebniswelt er, auk gistingar í þægilegum herbergjum og morgun- og kvöldverða, glæsileg heilsulind (spa) með ýmsum útgáfum af gufuböðum (m.a. sundfata sána), upphitaðri útisundlaug þar sem njóta má útsýnis um leið og teknar eru góðar teygjur eftir skíðadaginn (sjá myndir hér neðar) o.fl. Á hótelinu er einnig borðtennisborð, og keilusalinn og pílukastið má nota líka gegn gjaldi.
Fararstjórinn Guðmundur Jakobsson þekkir hverja braut og svæðið allt eins og lófann á sér og miðlar af þekkingu til farþeganna varðandi val á því hvað hentar hverjum og einum.
Innifalið í verði ferðar:
Flug:
Með Icelandair, flug og flugvallaskattar, 23 kg taska og 10 kg handfarangur*
20.02.2027: Icelandair, flug FI 532 Keflavík – Munchen, brottför 07:20 lending 12:05
27.02.2027: Icelandair, flug FI 533 Munchen – Keflavík, brottför 13:00 lending 16:00
Vinsaml. athugið að flugtímar geta breyst.
(Aukagjald fyrir skíðapoka kr. 16.800 samtals báðar leiðir er ekki innifalið**)
Gisting:
Hótel Erlebniswelt 4****
Matur:
Hálft fæði á hótel Erlebniswelt: morgunverðir – kvöldverðir
Akstur:
Akstur milli flugvallar og hótels í upphafi og lok ferðar
Fararstjórn:
Guðmundur Jakobsson
Annað:
6 daga skíðapassi á svæðin í nágrenninu er innifalinn!
Ekki innifalið:
Hádegishressingar | Drykkir með kvöldverðum | Aukagjald fyrir skíðapoka í fluginu, samtals kr. 16.800 fyrir báðar leiðir** | Annað sem ekki er talið upp í „innifalið“
Verð:
Verð á mann í tveggja manna herbergi 439.900
Á mann í eins manns herbergi 499.900
Greiðslur og gjalddagar:
Staðfestingargjaldið, kr. 100.000 þarf að greiða strax við pöntun. Það er óafturkræft ef þátttakandi hættir við.
Hægt er að velja um tvær leiðir við greiðslu þess, valið er á milli greiðsluleiða við skráningu á heimasíðunni.
Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á ferdir@fjallakofinn.is
Farþegar í ferðum Fjallakofans-Ævintýraferða / Íslandsvina hf. fá sérkjör í Fjallakofanum
* Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa
** Verð hjá Icelandair fyrir skíðatöskur veturinn 2025-2026:
„Skíðataska um leið og miði er gefin út og fram að innritun er 16.800 - við innritun og á vellinum 21.800“