MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH

HELSTU UPPLÝSINGAR
 
   8 dagar / 7 nætur    Ferðir til og frá flugvelli
     6. 2. -  13. 2. 2027    Flug og flugvallaskattar
   Hámark 25    Fararstjórar: Drífa Harðardóttir og Sara Jónsdóttir
   1/2 fæði    

 

SKEMMTILEG SKÍÐAFERÐ TIL SAALBACH HINTERGLEMM - MEÐ DRÍFU OG SÖRU!

Komdu með í austurrísku Alpana. Skíða- og útivistarkonurnar Drífa Harðardóttir og Sara Jónsdóttir leiða hóp til Saalbach Hinterglemm dagana 6.–13. febrúar 2027.
Þetta er ferðin þar sem snjór, sól, sturlað útsýni og Après-ski stemmning mætast í einni fullkominni viku. 

Skíðasvæðið:
Saalbach Hinterglemm er eitt af stærstu og bestu skíðasvæðum í Ölpunum og tilheyrir Skicircus svæðinu sem er kallað ein mesta skíðaparadís Evrópu. Saalbach Hinterglemm, Zell am See, Kaprun, Fieberbrunn og Leogang.  Svæðið er með 270 km af skíðabrekkum, skíðagöngusvæði og hefur frábært úrval af börum og veitingastöðum.  Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, bæði byrjendur og vanir.
270 km af troðnum brekkum: (140 km bláar, 112 km rauðar og 18 km svartar).
Lyfur: 70 nýtískulegar lyftur sem lágmarka allar biðraðir.
Jökullinn Kitzsteinhor: Við nýtum tækifærið og skellum okkur líka upp á hinn stórbrotna jökul í Kaprun þar sem útsýnið og brekkurnar eru engu lík.
Fjallaskálar: Yfir 60 notalegir fjallaskálar þar sem hægt er að gæða sér á þjóðlegum austurrískum kræsingum og fleiru í hádeginu.
Après-ski: Svæðið fær 5 stjörnur (fullt hús stiga) fyrir Aprés skíðastemninguna þar sem Týrólamúsíkin ómar og skíðafólk safnast saman í lok dags.

Hótelið:

Hótel Saalbacher Hof verður bækistöð hópsins

Hótelið sem gist verður á er hið glæsilega 4-stjörnu Hótel Saalbacher Hof. Hótelið er staðsett í hjarta miðbæjarins í Saalbach og það eru aðeins um 50 metrar í næstu skíðalyftu. Eftir frábæran dag í brekkunum er ekkert betra en að slaka á í frábærri heilsulind hótelsins þar sem finna má upphitaða innisundlaug, þrjú mismunandi gufuböð (sauna) og notaleg slökunarherbergi. Innifalinn er morgunverður og glæsilegur kvöldverður á hótelinu alla dagana. 

Fararstjórn:
Þær Drífa og Sara hafa báðar frá unga aldri stundað keppnisíþróttir og útivist af ýmsum toga og skipulagt margar ferðirnar. Skíðamennska þeirra hófst eins og hjá mörgum í Bláfjöllum sem lítil börn og hafa þær kynnst fjölda skíðastaða í Evrópu. Drífa stundaði skíði, æfði ballett og keppti á hestum og Sara var í landsliði í fimleikum og badminton og keppti út um allan heim - og fékk sinn fyrsta verðlaunapening einmitt í skíðaskóla í Kaprun 6 ára gömul. 
Drífa og Sara munu brosa sínu breiðasta í skíðabrekkunum og halda uppi almennu stuði og prógrammi. Þær elska skemmtilegt og jákvætt fólk og munu leggja mikið upp úr því að allir fái að njóta sín í brekkunum og í ferðinni allri.
Í boði verður ferð upp á jökulinn í Kaprun, sleðakvöld, þemadagur, spiladagur, spadagur, svo eitthvað sé nefnt, það verður auglýst til þátttakendanna þegar nær dregur.

 


 

Innifalið í verði ferðar:

 

Flug:

Með Icelandair, flug og flugvallaskattar, 23 kg taska og 10 kg handfarangur*

06.02.2027: Icelandair, flug FI 532  Keflavík – Munchen, brottför 07:20 lending 12:05

13.02.2027: Icelandair, flug FI 533  Munchen – Keflavík, brottför 13:00 lending 16:00

Vinsaml. athugið að flugtímar geta breyst.

(Aukagjald fyrir skíðapoka kr. 16.800 samtals báðar leiðir er ekki innifalið**)

 

Gisting:

Hótel Saalbacher hof

 

Matur:

Hálft fæði á hótelinu: morgunverðir – kvöldverðir

 

Akstur:

Akstur milli flugvallar og hótels í upphafi og lok ferðar

 

Fararstjórn:

Drífa Harðardóttir og Sara Jónsdóttir

 

 

Ekki innifalið: 

Hádegishressingar  |  Drykkir með kvöldverðum  |  Skíðapassi á svæðin í nágrenninu er EKKI innifalinn |  Aukagjald fyrir skíðapoka í fluginu, samtals kr. 16.800 fyrir báðar leiðir**  |  Annað sem ekki er talið upp í „innifalið“

Nánar um skíðapassana: Þeir eru keyptir á staðnum og gilda á öll samtengdu svæðin, Zell am See, Saalbach Hinterglemm, Fieberbrunn, Leogang og Kitzsteinhorn Kaprun jökulinn.

 

Verð:

Verð á mann í tveggja manna  herbergi  449.900                     

Á mann í eins manns herbergi                499.900   

 

Greiðslur og gjalddagar:

 

Staðfestingargjaldið, kr. 100.000 þarf að greiða strax við pöntun. Það er óafturkræft ef þátttakandi hættir við.

Hægt er að velja um tvær leiðir við greiðslu þess, valið er á milli þeirra við skráningu á heimasíðunni.

 

Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á ferdir@fjallakofinn.is

 

Farþegar í ferðum Fjallakofans-Ævintýraferða / Íslandsvina hf. fá sérkjör í Fjallakofanum

 


* Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa 

** Verð hjá Icelandair fyrir skíðatöskur veturinn 2025-2026:

„Skíðataska um leið og miði er gefin út og fram að innritun er 16.800 - við innritun og á vellinum 21.800“

 

Verð frá 449.900 kr

Staðfestingargjald 100.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH
MEÐ DRÍFU OG SÖRU TIL SAALBACH

Ábendingar:

Lágmarks þátttaka er 15 manns. Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferðina ef þátttaka er ekki næg, og mun þá endurgreiða að fullu.

Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir hf., fararstjórar hennar og bílstjórar, áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.

Hvert og eitt tekur þátt í ferðinni á eigin ábyrgð!

Sjúkdóma-, slysa- og forfallatryggingar eru ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í flestum tilfellum eru slíkar tryggingar innifaldar í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum og er viðskiptavinum bent á nauðsyn þess að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála.

Krafa er gerð um að þátttakendur séu í líkamlegu og andlegu standi til þess að taka þátt í dagskrá ferðarinnar og ferðaskrifstofan áskilur sér og fararstjórum allan rétt til þess að vísa þátttakendum sem ekki uppfylla þessi skilyrði úr ferðinni og er viðkomandi þar með búinn að fyrirgera rétti sínum til notkunar á þjónustu þeirri sem ferðin er byggð á og án þess að til greiðslu kostnaðar eða endurgreiðslu komi af hálfu ferðaskrifstofunnar.

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.