OKTOBERFEST Í MÜNCHEN
HELSTU UPPLÝSINGAR
LOKAHELGIN Á STÆRSTU BJÓRHÁTÍÐ Í HEIMI
Oktoberfest, stærsta bjórhátíð í heimi, er haldin árlega í Munchen, höfuðborg Bæjaralands í Þýskalandi. Árlega sækja hátíðina um 6 – 7 milljónir gesta sem koma til þess að upplifa stemninguna, hitta mann og annan, snæða bæverskan mat, og, síðast en alls ekki síst, drekka bjór! Áætlað er að um 7 milljónir lítra af sérbrugguðum – og sérstyrktum – hátíðarbjór renni niður kverkar gestanna á þessum rétt rúmum tveimur vikum sem hátíðin stendur.
Stemningin er eitthvað sem hrífur alla með sér, líka þau sem ekki drekka bjór! Sérstök upplifun er að vera á svæðinu um loka helgina til þess að fylgjast með lokaathöfn hátíðarinnar, en hún er á sunnudeginum við Bavaria styttuna sem vakir yfir hátíðarsvæðinu í Theresienwiese garðinum.
Í Munchen er svo líka ótalmargt áhugavert að skoða; byggingar, söfn o.fl.
Gisting og morgunverðir á hótel Maritim, mjög vel staðsettu m.t.t. dagskrár ferðarinnar
Dagskrá:
Dagur 1 - föstudagur, 2. október
Flug – lestarferð – hótel
Flogið með Icelandair kl. 07:20 til Munchen, lending þar er áætluð kl. 13:05 og þaðan er svo uþb. 45 mín. lestarferð inn í miðborgina.
Frá aðallestarstöðinni Hauptbahnhof er einungis uþb. 7-10 mín. gangur á hótel Maritim. Eftir innritun verður síðan gengið upp á hátíðarsvæðið, kíkt á stemninguna, farið í eina af bjórhöllunum og já, „et, drekk og ver glaðr“.
Dagur 2 - laugardagur, 3. október
Októberhátíðin o.fl.
kl. 16:00 verður aftur farið í eina af stóru bjórhöllunum til þess að taka þátt og upplifa stemninguna.
Hvað gert verður fram að því er algjörlega opið, fararstjórinn er til aðstoðar ef vilji einhverra úr hópnum er fyrir því að fara eitthvert ákveðið – ath. að allar verslanir í Munchen eru lokaðar á sunnudögum, svo fyrripart þessa dags er eini möguleikinn til að kíkja í búðir!
3. október, Sameiningardagurinn, er opinber frídagur í Þýskalandi, svo það er enn meira lífi í borginni en venjulega, og er það þó mikið fyrir!
Dagur 3 - sunnudagur, 4. október
Lokadagur hátíðarinnar!
Sérstök lokaathöfn hefst kl. 12:00 á hádegi við fætur Bavaria styttunnar. Þar er haldið í þá aldagömlu hefð að skjóta púðurskotum og mynda með því bæði hávaða og hvítan reyk, og það eru u.þ.b. 60 manns sem sjá um að skjóta burt hátíðina með þessum hætti. Allt er þetta gert með blessun frá ungri konu klæddri í svartan kufl með gulum/gulllituðum boðungum, í takt við mannveruna í skjaldarmerki borgarinnar; Münchner Kindl. Lokalag hátíðarinnar er samkvæmt hefðinni þjóðsöngur Bæjaralands
Seinnipartinn er svo upplagt að fara í skoðunarferðir um borgina.
Dagur 4 - mánudagur, 5. október
Heim á leið ...
Eftir morgunverðinn verður farið með lest til flugvallarins, flugið heim er kl. 14:05, áætluð lending kl. 16:00
__________________________________________________________________________________
Hálft fæði* - morgunverðir á Maritim hótelinu alla morgna - kvöldverðir / bjórhátíðarmáltíðir á föstudags- og laugardagskvöldið
Lágmarksþátttaka er 12 manns, hámark 25
Verð á mann í tvíbýli 299.900
Verð á mann í einbýli 384.900
Innifalið
Flug og flugvallaskattar:
02.10.2026: Flug FI 532 Keflavík – Munchen, brottför 07:20 lending 13:05
05.10.2026: Flug FI 533 Munchen – Keflavík, brottför 14:05 lending 16:00
Innifalið ein taska að hámarki 23 kg og handfarangur að hámarki 10 kg
Vinsaml. athugið að flugtímar geta breyst
Þrjár nætur á mjög góðu Maritim hótel í miðborg Munchen
Morgunverðir alla dagana / tveir bjórhátíðarkvöldverðir
Íslenskur fararstjóri
Lestarferðir milli flugvallar og miðborgar í upphafi og lok ferðar
Ekki innifalið
Hádegishressingar / kvöldverður á sunnudeginum 4. okt. / annað það sem ekki er talið upp í „innifalið”
Greiða þarf staðfestingargjald, kr. 50.000 strax við skráningu - ath. að það er óafturkræft ef þátttakandi hættir við:
* Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa