MEÐ HALLDÓRI HREINS TIL LUNGAU Í MARS '27 - LYFTUPASSI INNIFALINN!

HELSTU UPPLÝSINGAR
 
   8 dagar / 7 nætur    Ferðir til og frá flugvelli
    1. -   8. 3. 2027    Flug og flugvallaskattar
   Hámark 25    Fararstjórn: Halldór Hreinsson
   3/4 fæði*    

MJÖG GOTT ,,SKI IN/SKI OUT" HÓTEL, LYFTAN OG APRÉS SKI BAR Í BAKGARÐINUM, STÓR OG FLOTT SKÍÐASVÆÐI ALLT Í KRING!

Fátt er skemmtilegra en að leika sér í stórkostlegum skíðabrekkum Lungau í Austurríki! Lungau er einstakt skíðasvæði með u.þ.b. 320 km af troðnum skíðabrekkum af öllum stærðum og gerðum þar sem allir – byrjendur jafn sem lengra komnir – finna eitthvað við sitt hæfi. Lungau er eitt snjó- öruggasta svæði í Austurríki.  Þekktasta brekkan í St. Margarethen heitir A1 og var valin “Brekka ársins í Austurríki 2012” 6,5 km löng og þar má líka finna glæsilegan veitingastað með úrvals mat í fjallinu sjálfu. Tilvalin staður til að næra sig og njóta.

Auðvelt er að ferðast yfir á næsta skíðasvæði sem er Katschberg sem spannar tvö fjöll, Tschaneck og Aineck sem tengjast í gengnum Katschberghöhe. Svæðið býður yfir 70 km brekkum og fjölbreyttum fjallaskálum. Frá Aineck toppi má renna alla leið niður í St. Margarethen, þar sem Hótel Grizzly og A1 brekkan marka endann á fullkomnum skíðadegi með spennandi leiðum og fjölbreyttu landslagi. Frábær APRÈS-SKI bar er við hótelið og gott að enda þar í dagslok.

Fjallahringurinn í Obertauern er eitthvað sem engin gleymir eftir að hafa upplifað hann á skíðum og hinn frægi brautarhringur Tauernrunde er skemmtileg áskorun. Ef einhver langar, þá er auðvelt að skreppa þangað með áætlunarbíl. 

Fararstjórn og utanumhald ferðarinnar er í traustum höndum Halldórs Hreinssonar, sem hefur áratuga reynslu sem fararstjóri í skíðaferðum erlendis.

Lágmarks fjöldi 12 manns, hámark 25

Hótelið í Lungau:
Fátt er þægilegra í skíðaferðum en að hafa skíðalyfturnar rétt við hótelið. Þannig er því háttað með Hótel Grizzly. Fjögurra stjörnu hótel sem býður upp á glæsilega og fjöbreytta morgunverði og kvöldverði með fjölmörgum ljúffengum réttum sem er innifalið í verði ferðarinnar. Sérlega hugguleg og góð gufu og saunaböð eru á hótelinu.  Ekki má gleyma APRE-ski bar sem er rétt við hótelið. 
Á Hotel Grizzly er öll aðstaða til fyrirmyndar.
 
Innifalið í verði ferðar:

Flug:

Flug og flugvallaskattar, 23 kg taska og 10 kg handfarangur

01.03.2027: Icelandair, flug FI 532  Keflavík – Munchen, brottför 07:20 lending 12:05

08.03.2027: Icelandair, flug FI 533  Munchen – Keflavík, brottför 13:00 lending 16:00

Vinsaml. athugið að flugtímar geta breyst.

(Aukagjald fyrir skíðapoka kr. 16.800 er ekki innifalið*)

Gisting:

7 nætur á Hótel Grizzly 4**** í Lungau 

Matur:

¾ fæði* á hótel Grizzly = morgunverðir – síðdegishressingar – kvöldverðir   

Akstur:

Allur akstur í takt við dagskrá í upphafi og lok ferðarinnar (sjá hér ofar)

Annað:

Skíðapassar á öll svæðin í nágrenninu innifaldir!

Fararstjórn:

Halldór Hreinsson

Ekki innifalið:  

Hádegis hressingar  |  Drykkir með kvöldverðum  |  Aukagjald fyrir skíðapoka í fluginu, samtals kr. 16.800* fyrir báðar leiðir ef bókað í gegn hjá okkur  |  Annað sem ekki er talið upp í „innifalið“

Verð:

Verð á mann í tveggja manna  herbergi       429.900                    Hægt að bæta þriðja rúmi við ef þrír eða fjórir vilja vera saman - kjörið fyrir fjölskyldur! 

Á mann í eins manns herbergi                     469.900                   Einungis þrjú herbergi í boði!

Greiðslur og gjalddagar:

Staðfestingargjald, kr. 100.000 þarf að greiða strax við bókun í ferðina.

Til þess eru tvær leiðir, með millifærslu úr heimabanka eða með kreditkorti. Allar nánari upplýsingar koma þegar greiðsluleiðin er valin við skráninguna á heimasíðunni okkar.

Skráning hér á síðunni eða með því að senda tölvupóst á ferdir@fjallakofinn.is

Farþegar í ferðum Fjallakofans-Ævintýraferða / Íslandsvina hf. fá sérkjör í Fjallakofanum

Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa 

*Verð hjá Icelandair fyrir skíðatöskur veturinn 2025-2026, ef breyting verður á þessum verði fyrir veturinn 2026-2027 þá gilda þau við lokauppgjör þátttökugjaldsins:

„Skíðataska um leið og miði er gefin 16.800 og á vellinum 21.800“

Verð frá 429.900 kr

Staðfestingargjald 100.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð

Ábendingar:

Lágmarks þátttaka er 12 manns. Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferðina ef þátttaka er ekki næg, og mun þá endurgreiða að fullu.

Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir hf., fararstjórar hennar og bílstjórar, áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.

Hvert og eitt tekur þátt í ferðinni á eigin ábyrgð!

Sjúkdóma-, slysa- og forfallatryggingar eru ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í flestum tilfellum eru slíkar tryggingar innifaldar í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum og er viðskiptavinum bent á nauðsyn þess að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála.

Krafa er gerð um að þátttakendur séu í líkamlegu og andlegu standi til þess að taka þátt í dagskrá ferðarinnar og ferðaskrifstofan áskilur sér og fararstjórum allan rétt til þess að vísa þátttakendum sem ekki uppfylla þessi skilyrði úr ferðinni og er viðkomandi þar með búinn að fyrirgera rétti sínum til notkunar á þjónustu þeirri sem ferðin er byggð á og án þess að til greiðslu kostnaðar eða endurgreiðslu komi af hálfu ferðaskrifstofunnar.

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.