SKÍÐAFERÐ TIL LUNGAU FEB. '26 - LYFTUPASSI INNIFALINN!
HELSTU UPPLÝSINGAR
Fátt er skemmtilegra en að leika sér í stórkostlegum skíðabrekkum Lungau í Austurríki! Lungau er einstakt skíðasvæði með u.þ.b. 320 km af troðnum skíðabrekkum af öllum stærðum og gerðum þar sem allir – byrjendur jafn sem lengra komnir – finna eitthvað við sitt hæfi. Lungau er eitt snjó- öruggasta svæði í Austurríki. Þekktasta brekkan í St. Margarethen heitir A1 og var valin “Brekka ársins í Austurríki 2012” 6,5 km löng og þar má líka finna nýjan og glæsilegan veitingastað með úrvals mat í fjallinu sjálfu. Tilvalin staður til að næra sig og njóta.
Auðvelt er að ferðast yfir á næsta skíðasvæði sem er Katschberg sem spannar tvö fjöll, Tschaneck og Aineck sem tengjast í gengnum Katschberghöhe. Svæðið býður yfir 70 km brekkum og fjölbreyttum fjallaskálum. Frá Aineck toppi má renna alla leið niður í St. Margarethen, þar sem Hótel Grizzly og A1 brekkan marka endann á fullkomnum skíðadegi með spennandi leiðum og fjölbreyttu landslagi. Frábær APRÈS-SKI bar er við hótelið og gott að enda þar í dagslok.
Fjallahringurinn í Obertauern er eitthvað sem engin gleymir eftir að hafa upplifað hann á skíðum og hinn frægi brautarhringur Tauernrunde er skemmtileg áskorun. Ætlunin er að verja einum degi á þessu skemmtilega svæði og tekur akstur þangað um 35 mínútur í rútu frá hótelinu.
Af sérstökum ástæðum sem skapast nánast á öllum skíðasvæðum í Austurríki í febrúar vegna vetrarfría í skólum landsins, verður gist fyrstu nóttina á góðu hóteli í Salzburg, en strax að morgni sunnudags farið nánast beint í skíðabrekkurnar við Grizzly, og síðan innritað á hótelið seinnipart dagsins. Þannig fer engin tími til spillis og full nýting á öllum sex skíðadögunum í yndislegum brekkum Lungau og nágrennis.
Í boði er að fara í skíðakennslu með Dodda (Þorgrími Kristjáns) fyrir þau sem það vilja (valkvætt, ekki innifalið). Doddi hefur búið á svæðinu í áratugi og veit hvar og hvernig best er að skíða um þetta dásamlega svæði. Einnig mun hann bjóða upp á sérstaka ævintýraferð sem verður auglýst síðar (valkvætt, ekki innifalið)!
Fararstjórn og utanumhald ferðarinnar er í traustum höndum Halldórs Hreinssonar, sem hefur áratuga reynslu sem fararstjóri í skíðaferðum erlendis.
Lágmarks fjöldi 10 manns, hámark 20.
Hótelið í Lungau:
Ekkert er þægilegra í skíðaferðum en að hafa skíðalyfturnar rétt við hótelið. Þannig er því háttað með Hótel Grizzly. Fjögurra stjörnu hótel sem býður upp á glæsilega og fjöbreytta morgunverði og kvöldverði með með fjölmörgum ljúffengum réttum sem er innifalið í verði ferðarinnar. Sérlega hugguleg og góð gufu og saunaböð eru á hótelinu. Ekki má gleyma APRE-ski bar sem er rétt við hótelið.
Á Hotel Grizzly er öll aðstaða til fyrirmyndar.
Arte hotel er nútímalegt og vel staðsett hótel í Salzburg og þar verður gist fyrstu nóttina. Aðeins tíu mínútna gangur er inn í miðbæ þessarar fallegu og sögufrægu borgar og því gefst tækifæri til að virða fyrir sér það helsta, eins og t.d. húsið þar sem Mozart fæddist, og þar er líka sérlega fallegt miðbæjartorg með áhugaverðum kaffihúsum og söfnum. Góður upptaktur áður en farið verður morguninn eftir til að takast á við komandi ævintýri í skíðabrekkum Lungau.
Innifalið í verði ferðar:
Flug:
Flug og flugvallaskattar, 23 kg taska og 10 kg handfarangur
21.02.2026: Icelandair, flug FI 574 Keflavík – Salzburg, brottför 08:00 lending 12:50
28.02.2026: Icelandair, flug FI 575 Salzburg – Keflavík, brottför 14:00 lending 17:25
Vinsaml. athugið að flugtímar geta breyst.
(Aukagjald fyrir skíðapoka kr. 16.800 er ekki innifalið)
Gisting:
6 nætur á Hótel Grizzly 4**** í Lungau / 1 nótt á Arte hótel 4**** í Salzburg
Matur:
¾ fæði* á hótel Grizzly = morgunverðir – síðdegishressingar – kvöldverðir / kvöldverður á Bæverskum veitingastað í Salzburg fyrsta kvöldið
Akstur:
Allur akstur í takt við dagskrá í upphafi og lok ferðarinnar (sjá hér ofar)
Dagsferð til Obertauern
Annað:
Skíðapassar á öll svæðin í nágrenninu innifaldir!
Fararstjórn:
Halldór Hreinsson
Ekki innifalið:
Hádegis hressingar | Drykkir með kvöldverðum | Aukagjald fyrir skíðapoka í fluginu, samtals kr. 16.800 fyrir báðar leiðir ef bókað í gegn hjá okkur | Annað sem ekki er talið upp í „innifalið“
Verð:
Verð á mann í tveggja manna herbergi 429.900 Hægt að bæta þriðja rúmi við ef þrír eða fjórir vilja vera saman - kjörið fyrir fjölskyldur!
Á mann í eins manns herbergi EKKI Í BOÐI!!
Greiðslur og gjalddagar:
Staðfestingargjaldið, kr. 50.000 þarf að greiða strax við pöntun. Það er óafturkræft ef þátttakandi hættir við.
Hægt er að velja um tvær leiðir við greiðslu þess:
1) Í gegnum heimabanka: Kt. 470898-2919 (Íslandsvinir hf.) banki 0328-26-000288 - ath að áríðandi er að láta kerfið senda staðfestingu á greiðslunni á netfangið ferdir@fjallakofinn.is með skýringunni < Lungau feb 2026 >
2) Greiðslutengill fyrir greiðslu staðfestingargjalds með kreditkorti (smellið á hlekkinn hér fyrir neðan eða takið afrit og límið á vafra):
Greiðsla fyrir einn:
https://securepay.borgun.is/SecurePay/Ticket.aspx?ticket=NnUmcuSBQ
Greiðsla fyrir tvo:
https://securepay.borgun.is/SecurePay/Ticket.aspx?ticket=RZzpF7MtJ
Eftirstöðvar þarf að greiða í desember 2025 - haft verður samband við þátttakendur með tölvupósti vegna innheimtu lokagreiðslunnar þegar þar að kemur.
Skráning hér á síðunni eða með því að senda tölvupóst á ferdir@fjallakofinn.is
Farþegar í ferðum Fjallakofans-Ævintýraferða / Íslandsvina hf. fá sérkjör í Fjallakofanum
Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa
Verð hjá Icelandair fyrir skíðatöskur:
„Skíðataska um leið og miði er gefin 16.800 og á vellinum 21.800“