TÉKKLAND UM JÓLIN 2025

HELSTU UPPLÝSINGAR
 
   8 dagar / 7 nætur    Ferðir til og frá flugvelli
   19.-26.12.2025    Beint flug með Icelandair til Prag - Flug og flugvallaskattar
   Hámark 25    Enginn fararstjóri
   Hálft fæði     

 

RISAFJÖLLIN Í TÉKKLANDI UM JÓLIN 2025 - SKÍÐAFERÐ TIL ŠPINDLERUV MLÝN

Špindlerův Mlýn er stærsta skíðasvæði Tékklands. Samnefnt fjallaþorp er í þjóðgarði sem nefnist Krokonosk eða „Risafjöllin“, og stendur í uþb.720m hæð yfir sjávarmáli. Það er um 140 km norðan við Prag, rétt við landamæri Póllands og er ein vinsælasta útivistarperla Tékklands, bæði sumar og vetur.

Svæðið er rómað fyrir fjölbreytt úrval af skíðabrekkum fyrir allt skíðaáhugafólk. Á svæðinu eru einnig þrír snjóbrettagarðar, þar sem árlega eru haldin stór snjóbrettamót eins og t.d. Snow Jam. Svæðið hefur því mikið verið notað af atvinnumönnum til æfinga. Þar að auki eru frábærar skíðagöngubrautir út um allt og t.d. er hægt að ganga yfir til Póllands og til baka á sama deginum. Yngri kynslóðin getur einnig haft nóg fyrir stafni þar sem það eru tveir glæsilegir skíðagarðar á svæðinu þar sem blandað er saman skíðaiðkun og annarri skemmtilegri vetrarafþreyingu.

Špindlerův Mlýn er eitt besta skíðasvæði Tékklands hvort sem litið er til svigskíða- og snjóbrettabruns eða skíðagöngu. Það skiptist í tvo megin hluta: 

Svatý Petr – Hromovka svæðið sem er með hátt í 7 kílómetra af lyftum og er hækkunin allt að 450m.

Mísečky – Medvědín svæðið sem er með vel yfir 7 kílómetra af lyftum og er hækkunin á svæðinu allt að 600m. Á báðum svæðum eru margir veitingastaðir og barir í brekkunum þar sem er hægt að gæða sér á ljúffengum veitingum.

Rétt er að vekja athygli á að nýlega hafa talsverðar endurbætur og viðbætur verið gerðar á brekkunum og svæðinu sem gerir gott svæði enn betra, þ.á.m. fleiri snjóbyssur en áður.

 

Harmony Club Hotel er staðsett miðsvæðis í bænum og stendur sjálft í um 800 m.y.s. Það er nýtískulegt og býður uppá mjög góða aðstöðu fyrir sína gesti. Þetta er flott og vel útbúið 4 stjörnu hótel „með öllu“ og hægt er að renna sér beint út á skíðasvæðið. Góðar byrjenda- og barnabrekkur eru við hótelið þar sem m.a. er boðið upp á kennslu. Við hótelið er líka lyfta sem tengir beint við aðal lyftukerfi svæðisins.

Skíðaleiga er á hótelinu auk þess sem ýmis afþreying er í boði, s.s. keila, golfhermir o.fl.

Innifalið í dvölinni á Harmony er:

  • Hálft fæði; morgunverðahlaðborð kl. 7:00 - 10:00 og glæsileg kvöldverðahlaðborð 18:00 - 20:30
  • Ókeypis aðgangur að sundlaug og tveimur heitum pottum daglega milli 07:00 og 22:00
  • Baðsloppur til afnota meðan dvalið er á hótelinu

Sérstök dagskrá verður í kringum jólin og er líka innifalin:

  • Kaffi og jólatónleikar á Þorláksmessu
  • Veislumáltíð á aðfangadagskvöld (Gala dinner) hefst kl. 17:30
  • Í eitt skipti verður svokallað „Risafjalla-hlaðborð“

Mælt er með að kaupa skíðapassa fyrirfram hér 

Lágmarks fjöldi 10 manns, hámark 25.  

Ath. Það er enginn fararstjóri í þessari ferð!

 


Innifalið í verði ferðar:

 

Flug:

Flug og flugvallaskattar, 23 kg taska og 10 kg handfarangur.

19.12.2025: Icelandair, flug FI 536  Keflavík – Prag, brottför 07:20 lending 12:00

26.12.2025: Icelandair, flug FI 537  Prag – Keflavík, brottför 15:55 lending 16:00

Vinsaml. athugið að flugtímar geta breyst.

(Aukagjald fyrir skíðapoka, kr. 16.800 samtals báðar leiðir)

 

Gisting:

Hótel Harmony 4****

 

Matur:

Hálft fæði á hótel Harmony: morgun- og kvöldverðahlaðborð

Sérstök hátíðarmáltíð um jólin (sjá hér ofar)

 

Akstur:

Akstur milli flugvallar og hótels í upphafi og lok ferðar

 

Ekki innifalið:

Hádegis hressingar  |  Drykkir með kvöldverðum  |  Skíðapassi  |  Aukagjald fyrir skíðapoka í fluginu, samtals kr. 16.800 fyrir báðar leiðir  |  Annað sem ekki er talið upp í „innifalið“

 

Verð:

Verð á mann í tveggja manna  herbergi                                           259.900                  

Á mann í eins manns herbergi (ath. mjög takmarkað framboð)       359.900

 

Í boði eru líka 3 og 4 manna herbergi, sendið fyrirspurn á ferdir@fjallakofinn.is með nákvæmum upplýsingum um aldur allra þáttakenda því verð á þeim herbergjum er t.d. mjög háð aldri barna

 

Greiðslur og gjalddagar:

Vegna þess hversu stutt er til stefnu þarf að greiða þátttökugjaldið strax við pöntun!

 

 

 

Skráning hér á síðunni eða með því að senda tölvupóst á ferdir@fjallakofinn.is 

 

Farþegar í ferðum Fjallakofans-Ævintýraferða / Íslandsvina hf. fá sérkjör í Fjallakofanum

 

Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa 

Verð hjá Icelandair fyrir skíðatöskur:

„Skíðataska um leið og miði er gefin 16.800 og á vellinum 21.800“

 

 

UPPSELT!

Verð frá 259.900 kr

Staðfestingargjald 0 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025
TÉKKLAND UM JÓLIN 2025

Ábendingar:

Lágmarks þátttaka er 10 manns. Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferðina ef þátttaka er ekki næg, og mun þá endurgreiða að fullu.

Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir hf., fararstjórar hennar og bílstjórar, áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.

Hvert og eitt tekur þátt í ferðinni á eigin ábyrgð!

Sjúkdóma-, slysa- og forfallatryggingar eru ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í flestum tilfellum eru slíkar tryggingar innifaldar í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum og er viðskiptavinum bent á nauðsyn þess að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála.

Krafa er gerð um að þátttakendur séu í líkamlegu og andlegu standi til þess að taka þátt í dagskrá ferðarinnar og ferðaskrifstofan áskilur sér, fararstjórum og samstarfsaðilum allan rétt til þess að vísa þátttakendum sem ekki uppfylla þessi skilyrði úr ferðinni og er viðkomandi þar með búinn að fyrirgera rétti sínum til notkunar á þjónustu þeirri sem ferðin er byggð á og án þess að til greiðslu kostnaðar eða endurgreiðslu komi af hálfu ferðaskrifstofunnar.

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.