 |
8 dagar / 7 nætur |
 |
Ferðir til og frá flugvelli |
 |
21.-28.12.2026 |
 |
Beint flug með Icelandair til Prag - Flug og flugvallaskattar |
 |
Hámark 25 |
 |
Enginn fararstjóri |
 |
Hálft fæði |
|
|
RISAFJÖLLIN Í TÉKKLANDI UM JÓLIN 2026 - SKÍÐAFERÐ TIL ŠPINDLERUV MLÝN
VERÐ FRÁ KR. 219.900 OG UPP Í 279.900 Á MANN, FER EFTIR HERBERGJASKIPAN - SJÁ HÉR NEÐAR
Špindlerův Mlýn er stærsta skíðasvæði Tékklands. Samnefnt fjallaþorp er í þjóðgarði sem nefnist Krokonosk eða „Risafjöllin“, og stendur í uþb.720m hæð yfir sjávarmáli. Það er um 140 km norðan við Prag, rétt við landamæri Póllands og er ein vinsælasta útivistarperla Tékklands, bæði sumar og vetur.
Svæðið er rómað fyrir fjölbreytt úrval af skíðabrekkum fyrir allt skíðaáhugafólk. Á svæðinu eru einnig þrír snjóbrettagarðar, þar sem árlega eru haldin stór snjóbrettamót eins og t.d. Snow Jam. Svæðið hefur því mikið verið notað af atvinnumönnum til æfinga. Þar að auki eru frábærar skíðagöngubrautir út um allt og t.d. er hægt að ganga yfir til Póllands og til baka á sama deginum. Yngri kynslóðin getur einnig haft nóg fyrir stafni þar sem það eru tveir glæsilegir skíðagarðar á svæðinu þar sem blandað er saman skíðaiðkun og annarri skemmtilegri vetrarafþreyingu.
Špindlerův Mlýn er eitt besta skíðasvæði Tékklands hvort sem litið er til svigskíða- og snjóbrettabruns eða skíðagöngu. Það skiptist í tvo megin hluta:
Svatý Petr – Hromovka svæðið sem er með hátt í 7 kílómetra af lyftum og er hækkunin allt að 450m.
Mísečky – Medvědín svæðið sem er með vel yfir 7 kílómetra af lyftum og er hækkunin á svæðinu allt að 600m. Á báðum svæðum eru margir veitingastaðir og barir í brekkunum þar sem er hægt að gæða sér á ljúffengum veitingum.
Rétt er að vekja athygli á að nýlega hafa talsverðar endurbætur og viðbætur verið gerðar á brekkunum og svæðinu sem gerir gott svæði enn betra, þ.á.m. fleiri snjóbyssur en áður.
Harmony Club Hotel er staðsett miðsvæðis í bænum og stendur sjálft í um 800 m.y.s. Það er nýtískulegt og býður uppá mjög góða aðstöðu fyrir sína gesti. Þetta er flott og vel útbúið 4 stjörnu hótel „með öllu“ og hægt er að renna sér beint út á skíðasvæðið. Góðar byrjenda- og barnabrekkur eru við hótelið þar sem m.a. er boðið upp á kennslu. Við hótelið er líka lyfta sem tengir beint við aðal lyftukerfi svæðisins.
Skíðaleiga er á hótelinu auk þess sem ýmis afþreying er í boði, s.s. keila, golfhermir o.fl.
Innifalið í dvölinni á Harmony er:
- Hálft fæði; morgunverðahlaðborð kl. 7:00 - 10:00 og glæsileg kvöldverðahlaðborð 18:00 - 20:30
- Ókeypis aðgangur að sundlaug og tveimur heitum pottum daglega milli 07:00 og 22:00
- Baðsloppur til afnota meðan dvalið er á hótelinu
Sérstök dagskrá verður í kringum jólin og er líka innifalin:
- Kaffi og jólatónleikar á Þorláksmessu
- Veislumáltíð á aðfangadagskvöld (Gala dinner) hefst kl. 17:30
- Í eitt skipti verður svokallað „Risafjalla-hlaðborð“
Mælt er með að kaupa skíðapassa fyrirfram hér
Lágmarks fjöldi 10 manns, hámark 25.
Ath. Það er enginn fararstjóri í þessari ferð!
Innifalið í verði ferðar:
Flug:
Flug og flugvallaskattar, 23 kg taska og 10 kg handfarangur.
21.12.2026: Icelandair, flug FI 536 Keflavík – Prag, brottför 07:20 lending 12:00
28.12.2026: Icelandair, flug FI 537 Prag – Keflavík, brottför 15:55 lending 16:00
Vinsaml. athugið að flugtímar geta breyst.
(Aukagjald fyrir skíðapoka, kr. 16.800 samtals báðar leiðir - ath. verð frá vetrinum 2025-2026, ef verð hækkar hjá Icelandair fyrir veturinn 2026-2027 gildir það líka hér)
Gisting:
Hótel Harmony 4****
Matur:
Hálft fæði á hótel Harmony: morgun- og kvöldverðahlaðborð
Sérstök hátíðarmáltíð um jólin (sjá hér ofar)
Akstur:
Akstur milli flugvallar og hótels í upphafi og lok ferðar
Ekki innifalið:
Hádegis hressingar | Drykkir með kvöldverðum | Skíðapassi | Aukagjald fyrir skíðapoka í fluginu, samtals kr. 16.800 fyrir báðar leiðir* | Annað sem ekki er talið upp í „innifalið“
Verð:
Verð á mann í tveggja manna herbergi 2 í herbergi 279.900
Verð á mann í tveggja manna herbergi með aukarúmi (3 manna) 3 í herbergi 249.900
Verð á mann í tveggja manna herbergi með aukarúmi (3 manna + 1) 4 í herbergi 219.900
Verð á mann í fjölskylduherbergi (4 manna) 4 í herbergi 269.900
Verð á mann í fjölskylduherbergi (4 manna) með aukarúmi 5 í herbergi 239.900
Verð á mann í fjölskylduherbergi (4 manna) með tveimur aukarúmum 6 í herbergi 224.900
Varðandi verð fyrir börn sendið fyrirspurn á ferdir@fjallakofinn.is með nákvæmum upplýsingum um aldur allra þáttakenda því verð er háð aldri barna
Greiðslur og gjalddagar:
Staðfestingargjald, kr. 50.000 á mann, þarf að greiða strax við skráningu - ath. að það er óafturkræft ef þátttakandi hættir við
Til greiðslu þess eru tvær leiðir:
- millifærsla í gegnum heimabanka / kt. 470898-2919 Íslandsvinir hf. banki 0328-26-000288 / áríðandi er að láta kerfið senda staðfestingu á greiðslunni á netfangið ferdir@fjallakofinn.is með skýringunni Tékkland 2026
Skráning hér á síðunni eða með því að senda tölvupóst á ferdir@fjallakofinn.is
Farþegar í ferðum Fjallakofans-Ævintýraferða / Íslandsvina hf. fá sérkjör í Fjallakofanum
Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa
*Verð hjá Icelandair fyrir skíðatöskur veturinn 2025-2026:
„Skíðataska um leið og miði er gefin 16.800 og á vellinum 21.800“
*(Ef hækkun verður fyrir veturinn 2026-2027 þá mun það verð gilda varðandi þessa ferð og innheimt þegar til lokauppgjörs kemur)
Kallað verður eftir lokagreiðslu með tölvupósti haustið 2026