TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS

HELSTU UPPLÝSINGAR
 
   10 dagar / 9 nætur    Ferðir til og frá flugvelli
   24.02. - 04. 03. 2024    Flug og flugvallaskattar
   Hámark 30  Halldór Hreinsson
   Hálft fæði*     

Risafjöllin í Tékklandi

Skíðaferð til Špindlerův Mlýn - auk þess tvær nætur í Berlín í lok ferðar

Enn eitt árið ætlar Halldór Hreinsson að leiða hóp í skíðaferð til Tékklands, en segja má að í Krokonosk (Risa-) fjöllunum þekki hann aðra hverja þúfu - og síðan allar skíðabrekkur eins og lófann á sér!

Špindlerův Mlýn er stærsta skíðasvæði Tékklands. Samnefnt fjallaþorp er í þjóðgarði sem nefnist Krokonosk eða „Risafjöllin“, og stendur í uþb.720m hæð yfir sjávarmáli. Það er um 140 km norðan við Prag, rétt við landamæri Póllands og er ein vinsælasta útivistarperla Tékklands, bæði sumar og vetur.

Svæðið er rómað fyrir fjölbreytt úrval af skíðabrekkum fyrir allt skíðaáhugafólk. Á svæðinu eru einnig þrír snjóbrettagarðar, þar sem árlega eru haldin stór snjóbrettamót eins og   t.d. Snow Jam. Svæðið hefur því mikið verið notað af atvinnumönnum til æfinga. Þar að auki eru frábærar skíðagöngubrautir út um allt og t.d. er hægt að ganga yfir til Póllands og til baka á sama deginum. Yngri kynslóðin getur einnig haft nóg fyrir stafni þar sem það eru tveir glæsilegir skíðagarðar á svæðinu þar sem blandað er saman skíðaiðkun og annarri skemmtilegri vetrarafþreyingu.

Í lok ferðar verður dvalið í tvær nætur á góðu hóteli í Berlín!

6 daga skíðapassi er innifalinn í verði ferðarinnar!

Špindlerův Mlýn er eitt besta skíðasvæði Tékklands  hvort sem litið er til svigskíða- og snjóbrettabruns eða skíðagöngu. Það skiptist í tvo megin hluta;

 

Svatý Petr – Hromovka svæðið sem er með hátt í 7 kílómetra af lyftum og er hækkunin allt að 450m.

Mísečky – Medvědín svæðið sem er með vel yfir 7 kílómetra af lyftum og er hækkunin á svæðinu allt að 600m. Á báðum svæðum eru margir veitingastaðir og barir í brekkunum þar sem er hægt að gæða sér á ljúffengum veitingum.

Rétt er að vekja athygli á að talsverðar endurbætur og viðbætur hafa verið gerðar á brekkunum og svæðinu sem gerir gott svæði enn betra, þ.á.m. fleiri snjóbyssur en áður.

Á svæðinu eru einnig lögð spor fyrir skíðagöngufólkið og hægt að fara í lengri og skemmri ferðir til þess að skipta aðeins um takt frá bruninu í fjallinu!

 

* Morgunverðir alla dagana og kvöldverðahlaðborð á Harmony Club - ekki kvöldverðir í Berlín!

 

Smelltu á rauða   Nánari upplýsingar   hér til hliðar fyrir upplýsingar um verð, nánari ferðarlýsingu o.fl.

Verð frá 339.900 kr

Staðfestingargjald 150.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð Nánari upplýsingar
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS
TÉKKLAND Í FEBRÚAR - BERLÍN Í MARS

Ábendingar:
Fjallakofinn Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferð átta vikum fyrir brottför ef þátttaka er ekki næg.
Fjallakofinn Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir og fararstjórar hennar áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til. Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutrygginga fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd.

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.