TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN

HELSTU UPPLÝSINGAR
 
   8 dagar / 7 nætur    Ferðir til og frá flugvelli
   29.12.2023 - 05. 01. 2024    Beint flug til Prag - Flug og flugvallaskattar
   Hámark 20    Enginn fararstjóri
   Hálft fæði     

Risafjöllin í Tékklandi um áramótin - Skíðaferð til Špindlerův Mlýn

Špindlerův Mlýn er stærsta skíðasvæði Tékklands. Samnefnt fjallaþorp er í þjóðgarði sem nefnist Krokonosk eða „Risafjöllin“, og stendur í uþb.720m hæð yfir sjávarmáli. Það er um 140 km norðan við Prag, rétt við landamæri Póllands og er ein vinsælasta útivistarperla Tékklands, bæði sumar og vetur.

Svæðið er rómað fyrir fjölbreytt úrval af skíðabrekkum fyrir allt skíðaáhugafólk. Á svæðinu eru einnig þrír snjóbrettagarðar, þar sem árlega eru haldin stór snjóbrettamót eins og   t.d. Snow Jam. Svæðið hefur því mikið verið notað af atvinnumönnum til æfinga. Þar að auki eru frábærar skíðagöngubrautir út um allt og t.d. er hægt að ganga yfir til Póllands og til baka á sama deginum. Yngri kynslóðin getur einnig haft nóg fyrir stafni þar sem það eru tveir glæsilegir skíðagarðar á svæðinu þar sem blandað er saman skíðaiðkun og annarri skemmtilegri vetrarafþreyingu.

Ólíkt flestum skíðaferðum hefst þessi og lýkur á föstudegi!

Špindlerův Mlýn er eitt besta skíðasvæði Tékklands hvort sem litið er til svigskíða- og snjóbrettabruns eða skíðagöngu. Það skiptist í tvo megin hluta;

Svatý Petr – Hromovka svæðið sem er með hátt í 7 kílómetra af lyftum og er hækkunin allt að 450m.

Mísečky – Medvědín svæðið sem er með vel yfir 7 kílómetra af lyftum og er hækkunin á svæðinu allt að 600m.

 

Á báðum svæðum eru margir veitingastaðir og barir í brekkunum þar sem er hægt að gæða sér á ljúffengum veitingum.

Rétt er að vekja athygli á að talsverðar endurbætur og viðbætur hafa verið gerðar á brekkunum og svæðinu sem gerir gott svæði enn betra, þ.á.m. fleiri snjóbyssur en áður.

Harmony Club Hotel er staðsett miðsvæðis í bænum og stendur sjálft í um 800 m.y.s. Það er nýtískulegt og býður uppá mjög góða aðstöðu fyrir sína gesti. Þetta er flott og vel útbúið 4 stjörnu hótel „með öllu“ og hægt er að renna sér beint út á skíðasvæðið. Góðar byrjenda- og barnabrekkur eru við hótelið þar sem m.a. er boðið upp á kennslu. Við hótelið er líka lyfta sem tengir beint við aðal lyftukerfi svæðisins.

Skíðaleiga er á hótelinu auk þess sem ýmis afþreying er í boði, s.s. keila, golfhermir o.fl.

Innifalið í dvölinni á Harmony er:

  • Hálft fæði; morgun- og kvöldverðahlaðborð
  • Ókeypis aðgangur að sundlaug og tveimur heitum pottum daglega milli 07:00 og 22:00
  • Baðsloppur til afnota meðan dvalið er á hótelinu
  • Morgunverðahlaðborð kl. 7:00 - 10:00
  • Glæsileg kvöldverðahlaðborð 18:00 - 20:30

Sérstök dagskrá verður í kringum áramótin sjálf og er líka innifalin:

  • Hátíðarhlaðborð frá kl. 17:30 þann 31.12.2023
  • Smáréttahlaðborð á nýársnótt
  • Gamlárspartí, með flugeldum á áramótunum
  • Nýárs dögurður (brunch) 01.01.2024

Verð frá 369.900 kr

Staðfestingargjald 150.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð Nánari upplýsingar
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN
TÉKKLAND UM ÁRAMÓTIN

 


Ábendingar:
Fjallakofinn Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferð átta vikum fyrir brottför ef þátttaka er ekki næg.
Fjallakofinn Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir og fararstjórar hennar áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til. Forfallatrygging er ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í mörgum tilfellum er forfallatrygging innifalin í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutrygginga fólks og er viðskiptavinum bent á að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála. Verð ferðar er háð almennum gengisbreytingum, en breytist ekki eftir að hún er að fullu greidd.

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.