ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026

 
HELSTU UPPLÝSINGAR
 
  11 dagar / 10 nætur   Allur akstur skv. dagskrá
 6. -  16. 6. 2026   Flug og flugvallaskattar
Lágm. 12 / hám. 18   Fararstjórn: Brandur Jón H. Guðjónsson,
 Hálft fæði +*
 
Robert Ciglar og Zvone Hocevar
 

RAFHJÓLAFERÐ UM STÓRBROTIÐ LANDSLAG ALPANNA, FRÁ SALZBURG Í AUSTURRÍKI  SUÐUR TIL GRADO, Á ADRIAHAFSSTRÖND ÍTALÍU

 

Stórbrotin náttúrufegurð blasir við nær og fjær þegar hjólað verður á átta dögum um Alpana og suður að Adríahafinu. Tignarlegir tindar og búsældarlegir dalir, og svo út á sléttuna í átt til sjávar

Leiðin er u.þ.b. 415 km svo að meðaltali eru það um 60 km á dag, heildar hækkun nærri 2.400 m og lækkun um 2.650 m. Dagleiðirnar teljast vera léttar til miðlungs erfiðar, fimm fyrstu í Austurríki og síðustu þrjár á Ítalíu - og rafhjólin gera hverja brekku að léttum hjólatúr um aflíðandi hæðir 

 

Megnið af leiðinni verður verið á bundnu slitlagi á góðum hjólastígum, einstaka sinnum á umferðarlitlum götum, á smá köflum í aðeins meiri bíla umferð, en einnig að hluta á malarstígum.

Allan tímann verður farið um á þægilegum hraða til þess að njóta þess sem fyrir augu ber, og reglulega stoppað til þess að skoða áhugaverða staði, byggingar o.þ.h., að ógleymdu stórbrotnu landslaginu.

Í lok ferðar verður einn frídagur í Grado, fallegum bæ á Adriahafsströnd Ítalíu, milli Feneyja og Trieste.

Gist verður á góðum gistihúsum og hótelum.

Bíll fylgir hópnum meira og minna allan tímann og hann verður notaður til þess að ferja farangurinn á milli hótelanna. Bílstjórinn setur síðan öðru hvoru upp borð með léttum veitingum til hressingar og er líka til aðstoðar við hvað það sem uppá getur komið í ferðinni.

Þægilegar og fjölbreyttar dagleiðir, flestar u.þ.b. 50 – 60 km, og verandi á góðum raf-fjallahjólum hentar ferðin nánast hverjum sem er vanur – og hefur gaman af – að hjóla!

 

Algjör hjálmaskylda er í öllum okkar hjólaferðum 😊

 

Ferðaráætlun:

Dagur 1 - laugardagur, 6. júní

Munchen - Salzburg

Flogið með Icelandair til Munchen kl 07:20 - áætluð lending 13:05 og við tekur u.þ.b. 2 ½ klst. þægileg lestarferð til Salzburg.

Zum Hirchen hótel 4****, Salzburg

 

Dagur 2 - sunnudagur, 7. júní

Salzburg (424 m.y.s.) – Bischofshofen (544 m.y.s.)

Byrjað í miðborg Salzburg og að mestu verður síðan Salzach ánni fylgt inn í töfraheim Alpanna  – dagleiðin u.þ.b. 53 km

 

Dagur 3 - mánudagur, 8. júní

Bischofshofen (544 m.y.s.) – Bad Gastein (1.002 m.y.s.)

Eftir að hafa fylgt Salzach í byrjun dags verður farið til vinstri og upp með Schwarzach ánni og með henni upp í Gastein dalinn – dagleiðin u.þ.b. 52 km

 

Dagur 4 - þriðjudagur, 9. júní

Bad Gastein (1.002 m.y.s.) / Mallnitz (1.191 m.y.s.) – Spittal an der Drau (560 m.y.s.)

Fljótlega eftir að lagt verður af stað verður farið í lestina „Tauernbahn“ til bæjarins Mallnitz. Hann er í Kärnten, einu mikilvægasta ferðaþjónustuhéraði Austurríkis, staðsettu á suðurhlið Alpanna.  Frá Mallnitz hjólað til Spittal an der Drau  – dagleiðin u.þ.b. 59 km  

Hotel Ertl 4****, Spittal an der Drau

 

Dagur 5 - miðvikudagur, 10. júní

Spittal an der Drau (560 m.y.s.) – Villach (501 m.y.s.)  

Stutt og laggott, en margt að sjá; frá Spittal eftir fallegum Drau dalnum til Villach – dagleiðin u.þ.b. 39 km

 

Dagur 6 - fimmtudagur, 11. júní

Villach (501 m.y.s.) – Tarvisio (754 m.y.s.)

Að mestu meðfram ánni Gail, á suðurhluta Vallacher Alpanna, í gegnum hluta af Dobratsch náttúruverndarsvæðinu og inn í Ítalíu – Dagleiðin u.þ.b. 37 km

 

Dagur 7 - föstudagur, 12. júní

Tarvisio (754 m.y.s.) – Vensone (230 m.y.s.) 

Fyrsti hlutinn farinn eftir hjólastíg sem lagður var ofaná aflagða lestarleið, í lok dags verður komið út úr Alpa-landslaginu sem einkennt hefur ferðina fram til þessa – Dagleiðin u.þ.b. 61 km, að hluta til á vegi með akandi umferð

 

Dagur 8 - laugardagur, 13. júní

Venzone (230 m.y.s.) – Udine (113 m.y.s.) 

Suður, í átt til sjávar, og hér má ekki gleyma að líta um öxl til að sjá tignarleg fjöllin í baksýn! – dagleiðin u.þ.b. 55 km

Hotel Allegria, Udine

 

Dagur 9 - sunnudagur, 14. júní

Udine (113 m.y.s.) – Grado (2 m.y.s.)

Nú verður rúllað létt síðustu kílómetrana, lokakaflinn er eftir rennisléttum stígum yfir Grado lónið – dagleiðin u.þ.b. 59 km

Hotel Hannover 4****, Grado

 

Dagur 10 - mánudagur, 15. júní

Afslöppun í Grado

Farið á ströndina, kíkt á áhugaverðar byggingar, kannski siglt smávegis á Grado lóninu – tíminn er frjáls!

 

Dagur 11 - þriðjudagur, 16. júní

Það er stuttur akstur vestur til Feneyja flugvallar - og flogið þaðan heim ...

 

Innifalið í verði ferðar:

 

Flug:

Flug og flugvalla-skattar, 23 kg taska og 10 kg handfarangur

06.06.2026: Icelandair, flug FI 532  Keflavík – Muchen, brottför 07:20 lending 13:05

16.06.2026: Icelandair, flug FI 949  Feneyjar – Keflavík, brottför 16:10 lending 18:50

Vinsaml. athugið að flugtímar geta breyst.

 

Hjól:

Leiga á góðum rafhjólum

 

Gisting:

Á góðum hótelum og gistihúsum í takt við áætlun ferðarinnar (sjá dagskrá hér ofar)

 

Matur:

Hálft fæði +* = morgunverðir alla morgnana - 10 x kvöldverðir - ,,hressingar" á hjólaleiðinni, þó ekki hádegisverðir

 

Akstur o.fl.:

Akstur milli hótels og flugvallar í lok ferðar

Tvær lestarferðir a) frá Munchen til Salzburg á fyrsta degi og b) á milli svæða á degi 4

Trúss á farangri milli hótelanna

 

Ekki innifalið:   

Hádegis- og/eða miðdags hressingar  |  Drykkir með inniföldum kvöldverðum  |  Annað sem ekki er talið upp í „innifalið“

 

Verð:

Verð á mann í tveggja manna  herbergi 599.900                  

Á mann í eins manns herbergi 689.900 

 

Greiðslur og gjalddagar:

Staðfestingargjald, kr. 100.000 þarf að greiða strax við skráningu í ferðina - ath. að það er óafturkræft ef þátttakandi hættir við.

Til greiðslu þess eru tvær leiðir:

A) Með kreditkorti í gegnum þennan tengil hér - ef hann er notaður kemur sjálfkrafa staðfesting á greiðslunni inn á netfangið okkar:

https://securepay.borgun.is/SecurePay/Ticket.aspx?ticket=ZaSghgdg1

Þessi tengill er ef greitt er staðfestingargjald fyrir tvo með sama korti:

https://securepay.borgun.is/SecurePay/Ticket.aspx?ticket=ypv0mkvm0

 

B) Með millifærslu í gegnum heimabanka - kt. 470898-2919 (Íslandsvinir hf.) banki 0328-26-000288 ath. ef þessi leið er valin er MJÖG áríðandi að láta kerfið senda staðfestingu á greiðslunni á netfangið ferdir@fjallakofinn.is með skýringunni Út og suður 2026

 

Á vordögum verður með tölvupósti kallað eftir lokagreiðslu þátttökugjaldsins

 

 

Skráning hér á síðunni eða með því að senda tölvupóst á ferdir@fjallakofinn.is


Farþegar í ferðum Fjallakofans-Ævintýraferða / Íslandsvina hf. fá sérkjör í Fjallakofanum

Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa 

 

 

 

 Greiðsla á staðfestingargjaldi 

 - sjá texta neðst á þessari síðu 

Verð frá 599.900 kr

Staðfestingargjald 100.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ JÚNÍ 2026

 

 

Ábendingar:

Lágmarks þátttaka er 10 manns. Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir áskilur sér rétt til að hætta við ferðina ef þátttaka er ekki næg, og mun þá endurgreiða að fullu.

Fjallakofinn-Ævintýraferðir/Ferðaskrifstofan Íslandsvinir hf., fararstjórar hennar og bílstjórar, áskilja sér allan rétt til að breyta áætlunum ferða ef veður, umferð og/eða ástand vega, eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.

Hvert og eitt tekur þátt í ferðinni á eigin ábyrgð!

Sjúkdóma-, slysa- og forfallatryggingar eru ekki í boði í sérferðum ferðaskrifstofunnar. Í flestum tilfellum eru slíkar tryggingar innifaldar í skilmálum greiðslukorta og/eða heimilis- og fjölskyldutryggingum og er viðskiptavinum bent á nauðsyn þess að hafa samband við banka sinn eða tryggingarfélag til að kanna stöðu mála.

Krafa er gerð um að þátttakendur séu í líkamlegu og andlegu standi til þess að taka þátt í dagskrá ferðarinnar og ferðaskrifstofan áskilur sér og fararstjórum allan rétt til þess að vísa þátttakendum sem ekki uppfylla þessi skilyrði úr ferðinni og er viðkomandi þar með búinn að fyrirgera rétti sínum til notkunar á þjónustu þeirri sem ferðin er byggð á og án þess að til greiðslu kostnaðar eða endurgreiðslu komi af hálfu ferðaskrifstofunnar.

Fjallakofinn Ævintýraferðir/Íslandsvinir eru með skilmála sem unnið er eftir varðandi ferð sem þessa og lesa má um hér.