ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ - SEPT. 2026

 
HELSTU UPPLÝSINGAR
 
  11 dagar / 10 nætur   Allur akstur skv. dagskrá
 22. 9. -  2.10. 2026   Flug og flugvallaskattar
Lágm. 12 / hám. 18   Fararstjórn: Brandur Jón H. Guðjónsson,
 Hálft fæði +*
 
Robert Ciglar og Zvone Hocevar
 

RAFHJÓLAFERÐ UM STÓRBROTIÐ LANDSLAG ALPANNA, FRÁ SALZBURG Í AUSTURRÍKI  SUÐUR TIL GRADO, Á ADRIAHAFSSTRÖND ÍTALÍU

  UPPSELT - BENDUM Á SYSTURFERÐINA 6.-16. JÚNÍ  

Stórbrotin náttúrufegurð blasir við nær og fjær þegar hjólað verður á átta dögum um Alpana og suður að Adríahafinu. Tignarlegir tindar og búsældarlegir dalir, og svo út á sléttuna í átt til sjávar

Leiðin er u.þ.b. 415 km svo að meðaltali eru það um 60 km á dag, heildar hækkun nærri 2.400 m og lækkun um 2.650 m. Dagleiðirnar teljast vera léttar til miðlungs erfiðar, fimm fyrstu í Austurríki og síðustu þrjár á Ítalíu - og rafhjólin gera hverja brekku að léttum hjólatúr um aflíðandi hæðir 

 

Megnið af leiðinni verður verið á bundnu slitlagi á góðum hjólastígum, einstaka sinnum á umferðarlitlum götum, á smá köflum í aðeins meiri bíla umferð, en einnig að hluta á malarstígum.

Allan tímann verður farið um á þægilegum hraða til þess að njóta þess sem fyrir augu ber, og reglulega stoppað til þess að skoða áhugaverða staði, byggingar o.þ.h., að ógleymdu stórbrotnu landslaginu.

Í lok ferðar verður einn frídagur í Grado, fallegum bæ á Adriahafsströnd Ítalíu, milli Feneyja og Trieste.

Gist verður á góðum gistihúsum og hótelum.

Bíll fylgir hópnum meira og minna allan tímann og hann verður notaður til þess að ferja farangurinn á milli hótelanna. Bílstjórinn setur síðan öðru hvoru upp borð með léttum veitingum til hressingar og er líka til aðstoðar við hvað það sem uppá getur komið í ferðinni.

Þægilegar og fjölbreyttar dagleiðir, flestar u.þ.b. 50 – 60 km, og verandi á góðum raf-fjallahjólum hentar ferðin nánast hverjum sem er vanur – og hefur gaman af – að hjóla!

 

Algjör hjálmaskylda er í öllum okkar hjólaferðum 😊

 

Ferðaráætlun:

Dagur 1 - þriðjudagur, 22. september

Munchen - Salzburg

Flogið með Icelandair til Munchen kl 07:20 - áætluð lending 13:05 og við tekur u.þ.b. 2 ½ klst. þægileg lestarferð til Salzburg.

Zum Hirchen hótel 4****, Salzburg

 

Dagur 2 - miðvikudagur, 23. september

Salzburg (424 m.y.s.) – Bischofshofen (544 m.y.s.)

Byrjað í miðborg Salzburg og að mestu verður síðan Salzach ánni fylgt inn í töfraheim Alpanna  – dagleiðin u.þ.b. 53 km

 

Dagur 3 - fimmtudagur, 24. september

Bischofshofen (544 m.y.s.) – Bad Gastein (1.002 m.y.s.)

Eftir að hafa fylgt Salzach í byrjun dags verður farið til vinstri og upp með Schwarzach ánni og með henni upp í Gastein dalinn – dagleiðin u.þ.b. 52 km

 

Dagur 4 - föstudagur, 25. september

Bad Gastein (1.002 m.y.s.) / Mallnitz (1.191 m.y.s.) – Spittal an der Drau (560 m.y.s.)

Fljótlega eftir að lagt verður af stað verður farið í lestina „Tauernbahn“ til bæjarins Mallnitz. Hann er í Kärnten, einu mikilvægasta ferðaþjónustuhéraði Austurríkis, staðsettu á suðurhlið Alpanna.  Frá Mallnitz hjólað til Spittal an der Drau  – dagleiðin u.þ.b. 59 km  

Hotel Ertl 4****, Spittal an der Drau

 

Dagur 5 - laugardagur, 26. september

Spittal an der Drau (560 m.y.s.) – Villach (501 m.y.s.)  

Stutt og laggott, en margt að sjá; frá Spittal eftir fallegum Drau dalnum til Villach – dagleiðin u.þ.b. 39 km

 

Dagur 6 - sunnudagur, 27. september

Villach (501 m.y.s.) – Tarvisio (754 m.y.s.)

Að mestu meðfram ánni Gail, á suðurhluta Vallacher Alpanna, í gegnum hluta af Dobratsch náttúruverndarsvæðinu og inn í Ítalíu – Dagleiðin u.þ.b. 37 km

 

Dagur 7 - mánudagur, 28. september

Tarvisio (754 m.y.s.) – Vensone (230 m.y.s.) 

Fyrsti hlutinn farinn eftir hjólastíg sem lagður var ofaná aflagða lestarleið, í lok dags verður komið út úr Alpa-landslaginu sem einkennt hefur ferðina fram til þessa – Dagleiðin u.þ.b. 61 km, að hluta til á vegi með akandi umferð

 

Dagur 8 - þriðjudagur, 29. september

Venzone (230 m.y.s.) – Udine (113 m.y.s.) 

Suður, í átt til sjávar, og hér má ekki gleyma að líta um öxl til að sjá tignarleg fjöllin í baksýn! – dagleiðin u.þ.b. 55 km

Hotel Allegria, Udine

 

Dagur 9 - miðvikudagur, 30. september

Udine (113 m.y.s.) – Grado (2 m.y.s.)

Nú verður rúllað létt síðustu kílómetrana, lokakaflinn er eftir rennisléttum stígum yfir Grado lónið – dagleiðin u.þ.b. 59 km

Hotel Hannover 4****, Grado

 

Dagur 10 - fimmtudagur, 1. október

Afslöppun í Grado

Farið á ströndina, kíkt á áhugaverðar byggingar, kannski siglt smávegis á Grado lóninu – tíminn er frjáls!

 

Dagur 11 - föstudagur, 2. október

Það er stuttur akstur vestur til Feneyja flugvallar - og flogið þaðan heim ...

 

Innifalið í verði ferðar:

 

Flug:

Flug og flugvalla-skattar, 23 kg taska og 10 kg handfarangur

22.09.2026: Icelandair, flug FI 532  Keflavík – Muchen, brottför 07:20 lending 13:05

02.10.2026: Icelandair, flug FI 949  Feneyjar – Keflavík, brottför 16:10 lending 18:50

Vinsaml. athugið að flugtímar geta breyst.

 

Hjól:

Leiga á góðum rafhjólum

 

Gisting:

Á góðum hótelum og gistihúsum í takt við áætlun ferðarinnar (sjá dagskrá hér ofar)

 

Matur:

Hálft fæði +* = morgunverðir alla morgnana - 10 x kvöldverðir - ,,hressingar" á hjólaleiðinni, þó ekki hádegisverðir

 

Akstur o.fl.:

Akstur milli hótels og flugvallar í lok ferðar

Tvær lestarferðir a) frá Muchen til Salzburg á fyrsta degi og b) á milli svæða á degi 4

Trúss á farangri milli hótelanna

 

Ekki innifalið:   

Hádegis- og/eða miðdags hressingar  |  Drykkir með inniföldum kvöldverðum  |  Annað sem ekki er talið upp í „innifalið“

 

Verð:

Verð á mann í tveggja manna  herbergi 599.900                  

Á mann í eins manns herbergi 689.900 

  UPPSELT - BENDUM Á SYSTURFERÐINA 6.-16. JÚNÍ  

Skráning hér á síðunni eða með því að senda tölvupóst á ferdir@fjallakofinn.is


Farþegar í ferðum Fjallakofans-Ævintýraferða / Íslandsvina hf. fá sérkjör í Fjallakofanum

Félagar í Vildarklúbbi Icelandair safna punktum í þessu flugi - ekki er hægt að nýta Vildarpunkta Icelandair til greiðslu inn á hópferð sem þessa 

 

 

 

UPPSELT!

Verð frá 599.900 kr

Staðfestingargjald 100.000 kr

Fjöldi farþega

Senda fyrirspurn um ferð
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ - SEPT. 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ - SEPT. 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ - SEPT. 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ - SEPT. 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ - SEPT. 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ - SEPT. 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ - SEPT. 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ - SEPT. 2026
ÚT OG SUÐUR - RAFHJÓLAFERÐ - SEPT. 2026